03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (807)
138. mál, aðgangur skóla að náms- og kennslugögnum
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Á síðasta þingi var flutt svohljóðandi þáltill., með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta kanna hvernig best væri að haga samstarfi við samtök sveitarfélaga um að koma á fót kennslugagnamiðstöðvum í tengslum við fræðsluskrifstofur í öllum landshlutum. Kennslugagnamiðstöðvar hafi það meginverkefni að lána skólum námsgögn, kennslutæki og hjálpargögn þannig að öllum nemendum verði tryggður aðgangur að fjölbreyttum kennslugögnum hvar á landinu sem þeir búa.
Till. þessi var flutt af þm. fimm flokka og var endurflutt frá árinu áður. Eftir umfjöllun í hv. allshn. Sþ var till. samþykkt með eftirfarandi breytingum:
Í fyrsta lagi var fyrirsögn tillögunnar breytt þannig að hún hét „Tillaga til þingsályktunar um aðgang að námsog kennslugögnum í öllum fræðsluumdæmum.“
Í öðru lagi var tillgr. breytt þannig:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta kanna í samstarfi við samtök sveitarfélaga og fræðsluskrifstofur í öllum landshlutum hvernig hagkvæmast sé að auðvelda skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum þannig að tryggt verði að allir nemendur hvar sem þeir búa á landinu geti hagnýtt sér fjölbreytt kennslugögn í námi.“
Till. þessi var flutt vegna þess hve aðstaða barna til náms er misjöfn eftir búsetu og vegna þess hve afdrifarík slík mismunun er fyrir framtíð manna í þjóðfélagi sem gerir sífellt meiri kröfur, bæði um fjölbreytta og sérhæfða menntun. Því er mikilvægt að hefjast þegar handa við að jafna það örétti sem ríkir í þessum efnum milli dreifbýlis og þéttbýlis. Ég hef því leyft mér að spyrja hæstv. menntmrh. á þskj. 152:
„Hvað líður framkvæmd könnunar á því hvernig hagkvæmast sé að auðvelda skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum í öllum fræðsluumdæmum, sbr. ályktun Alþingis frá 13. júni s.l.?"