03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
137. mál, úrsögn Íslands úr alþjóðahvalveiðiráðinu
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég fagna svörum ráðherra við þessari undarlegu spurningu sem hv. þm. Eiður Guðnason hefur lagt fram. Ég minni á að Ísland undirritaði hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna 1982. Öll sú vinna sem að baki því verki lá er auðvitað tilkomin vegna sameiginlegs áhuga allra jarðarbúa á viðhaldi og verndun auðlinda sinna sem er ekki hagsmunamál einnar þjóðar fremur en annarrar.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að minna á að 2. febr. 1983 voru greidd atkvæði á Alþingi um svohljóðandi ályktun, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um takmörkun hvalveiða, sem kunngerð var með bréfi til ríkisstjórnarinnar dags. 2. sept. 1982, verði ekki mótmælt af Íslands hálfu.“
Þar með þykir mér það varla vera á dagskrá að Alþingi hafi svo mjög skipt um skoðun nú, að það telji ekki að Alþjóðahvalveiðiráðið sé marktæk stofnun. Því miður gefst ekki tími til umræðna og stundum ber að harma það, vegna þess að ég held að bæta mætti inn verulegri upplýsingu um störf Alþjóðahvalveiðiráðsins, en til þess gefst ekki tími.
Ég vil leggja á það mikla áherslu að sú lítilsvirðing sem stundum gætir hjá Íslendingum þegar þeir tala um aðrar þjóðir sem aðild eiga að Alþjóðahvalveiðiráðinu kemur úr hörðustu átt. Þeir tala jafnvel um smæð þeirra og þýðingarleysi. Ég held að Íslendingum fari illa að ræða á þann hátt um smáþjóðir.
Víst skil ég áhuga hv. þm. Vesturl. að setja það ofar því þýðingarmikla máli sem verndun auðlinda jarðarinnar er að halda þingsæti sínu fyrir kjördæmi sitt, en merkileg pólitík getur það ekki talist. Mér er fullljóst að Eiður Guðnason veit betur. Ég skora þess vegna á hæstv. sjútvrh. að halda fast við sitt í þessu máli.