03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

137. mál, úrsögn Íslands úr alþjóðahvalveiðiráðinu

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Þau ummæli sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir viðhafði um mig áðan og afstöðu mína til þessa máls segja kannske meira um hana en mig. Þau eru með einkennilegri ummælum sem ég hef heyrt viðhöfð úr þessum ræðustóli.

Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir svar hans. Ef Norðmenn segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu, eins og þeir íhuga, hlýtur það mál að koma til athugunar og endurskoðunar af okkar hálfu. Það hlýtur að gera það. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta og þessi mál skipta okkur mjög miklu. Vissulega tók Alþingi sína ákvörðun fyrir tveimur árum en hún var tekin með mjög eftirminnilegum hætti og þar var afar mjótt á munum. Og ég hugsa að sumir þm. kæri sig ekki allt of mikið um að vera minntir á þá atkvæðagreiðslu. Það var ekki svo hátt á henni risið. Menn komu í þennan ræðustól og sögðu: Ég beygi mig fyrir hótunum um ofbeldi og kúgun.

Ég þakka hæstv. ráðherra svör hans, en ég ítreka að það hlýtur að koma til greina að við íhugum að endurskoða afstöðu okkar til þessarar samkomu þar sem viðurkennt er og margsagt á prenti að menn hreinlega geta keypt sig inn og keypt sér atkvæðisrétt. Það ber ekki að sýna slíkum stofnunum mjög mikla virðingu. En þessi mál hefur borið á góma á fundum norrænna þingmanna, afstöðuna til þessara mála, og mig langar í því sambandi, herra forseti, að minna á tillögu sem samþykkt var á fundi vestnorræna þingmannaráðsins á stofnfundi þess í Nuuk á Grænlandi í september. Þar segir:

„Fundur vestnorræna þingmannaráðsins haldinn í Nuuk 24. september álítur nauðsynlegt fyrir Færeyjar, Ísland og Grænland að efna til öflugs samstarfs í því skyni að upplýsa um rétt landanna til hagnýtingar náttúruauðlinda í Norður-Atlantshafi. Á seinni árum hafa ýmsir hópar í síauknum mæli beint starfsemi sinni að þessum löndum. Grænlendingar hafa þegar orðið fyrir verulegu tjóni og nú beina þessir hópar starfsemi sinni að Færeyingum og Íslendingum. Ráðið telur algjöra nauðsyn bera til þess að þessar þrjár þjóðir vinni ötullega að því að kynna aðstæður í löndunum og draga þannig úr tjóni sem orðið hefur vegna misskilnings sem starfsemi ýmissa umhverfissamtaka hefur valdið.“