03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (828)
141. mál, röksemdir fyrir hollenskri hersveit á Keflavíkurflugvelli
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Á þskj. 155 ber hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson fram fsp. í tveimur liðum. Fyrri lið má svara með þeim hætti að Hollendingar rökstuddu beiðni sína með því að þeir þyrftu bætta aðstöðu til að þjálfa kafbátaleitarsveitir sínar, eins og fram kom í skýrslu minni um utanríkismál fyrr á þessu ári, en þar er komist svo að orði:
„Í þessu sambandi hefur verið til athugunar hjá utanrrn. erindi Hollendinga um að fá heimild til þess að staðsetja á Keflavíkurflugvelli eina kafbátaleitarvél af sams konar gerð og varnarliðið hefur nú til umráða. Áhugi Hollendinga byggist fyrst og fremst á því að fá tækifæri til að æfa hollenskar áhafnir í eftirlitsstörfum á Norður-Atlantshafi í þágu sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Fjöldi Hollendinga yrði um þrjátíu, þar með talið bæði áhöfn og starfsmenn til þess að annast viðhald vélarinnar, en dvalartími yrði einn til tveir mánuðir í senn.“ - Þó hefur verið ákveðið að dvalartími hverrar vélar yrði einn mánuður og færi hún síðan í skoðun á mánaðar fresti. Jafnvel getur þessi tími styst í hálfan mánuð. - „Ekki yrði um fjölgun í varnarliðinu að ræða þar sem bandarískum vélum og starfsliði fækkaði samsvarandi.“
Það hefur einnig komið fram í þessu máli að áhugi Bandaríkjamanna á því að Hollendingar taki við störfum hér að þessu leyti og að þessu marki byggist á því að í því er fólgin ákveðin þjálfun á samræmingu og samhæfingu þeirra sveita Atlantshafsbandalagsins sem fjalla um og sjá um kafbátaleit.
2. lið fyrirspurnarinnar vil ég svara þannig: Hér er um að ræða sameiginlega viðleitni aðila Norður-Atlantshafssamningsins til að varðveita frið og öryggi á því svæði sem samningurinn nær til. Eftirlit með kafbátum er veigamikill þáttur í þeirri viðleitni. Hollendingar hafa með sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins í huga byggt sínar kafbátaleitarsveitir upp umfram það sem þeir þurfa til eigin landvarna í þrengsta skilningi. Það er þeirra framlag. Framlag okkar er að leggja til aðstöðu í landi okkar og hagsmunir okkar eru þeir að samræming og samhæfing þeirra varnarsveita sem eiga að sjá um öryggi Íslands sé í fullkomnu lagi.
Varðandi þá fsp. hv. þm. hvort Orion-flugvél sú sem hér er staðsett af hálfu Hollands sé hluti af þeim Orionflugvélum sem ætlað er sérstakt hlutverk varðandi kjarnorkuvopnavarnir, þá er þess að geta og skal skýrt tekið fram að þessi Orion-flugvél ber ekki kjarnorkuvopn og mun ekki gera það meðan hún hefur þessa aðstöðu hér á landi. Hitt er ekkert leyndarmál og hefur aldrei verið að Orion-vélarnar sem slíkar geta borið kjarnorkuvopn. En þær geta ekki tekið kjarnorkuvopn nema á stöðvum par sem þau eru staðsett. Slíkt er hvorki til staðar á Íslandi né í Hollandi eins og kunnugt er hvað snertir vopnabúnað Orion-flugvéla, enda er hér um að ræða hvaða hlutverki hollenskar Orion-flugvélar muni gegna á stríðstímum.