22.10.1985
Sameinað þing: 5. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

37. mál, heilsugæsla á Vopnafirði

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 37 hef ég leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. um heilsugæslu á Vopnafirði, en læknir er þar nú í ársleyfi:

„Hvaða ráðstafanir hefur heilbr.- og trmrn. gert til að leysa heilsugæsluvandann í Vopnafjarðarhéraði?"

Hér þarf ekki að tíunda mikilvægi góðrar heilsugæslu og öruggrar læknisþjónustu. Þar hefur vissulega margt og mikið áunnist. Landsbyggðin, sem áður bjó við mikið öryggisleysi í þessum efnum, hefur notið góðs af jákvæðri framþróun þessara mála og undantekning er ef þar hefur brugðið út af. Þó eru nú tvö héruð eystra í erfiðleikum vegna læknisleysis, Djúpavogs- og Vopnafjarðarlæknisumdæmi. Starfandi læknar á báðum stöðum eru í leyfi frá störfum. Djúpivogur er sagður fá úrlausn frá desemberbyrjun og þá sennilegast þann veg að læknirinn komi þangað aftur. Svo mun og um Vopnafjörð, en þangað til er nær ár.

Vopnafjarðarumdæmi er illa sett samgöngulega að vetrarlagi og ekki bætir úr að í næsta héraði norðan við, Þórshafnarhéraði, er hið mesta vandræðaástand í heilsugæslumálum. Þangað hefur ekki fengist læknir til lengri tíma en skammrar dvalar. Því er spurt nú, þegar vetur er að ganga í garð og á þessu landshorni verður enginn læknir svo að vitað sé, a.m.k. þegar þessi fsp. var lögð fram, hvaða líkur séu á að úr rætist. Ég veit að að þessu er verið að vinna, en fyrir íbúa þessa svæðis skiptir miklu að vita hver úrlausn þeirra mála getur orðið og þá hvenær og hvernig það er til þess tíma er læknir kemur aftur úr leyfi sínu.