03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (833)

141. mál, röksemdir fyrir hollenskri hersveit á Keflavíkurflugvelli

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Nú hef ég hlýtt vandlega á þessa umræðu og hnotið um það að hæstv. utanrrh. talar allan tímann um samkomulag. Þess vegna hlýt ég að leyfa mér að spyrja: Hefur ekki verið gerður neinn samningur? Og ef svo er ekki, við hvern er þá þetta samkomulag? Ég óska eftir að hæstv. ráðh. svari því.