03.12.1985
Sameinað þing: 24. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (848)
Umferðamál
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir svörin, en ég held að ekki megi láta staðar numið við umræðu sem þessa heldur þurfi að halda þessu máli áfram með einhverjum hætti og það sé beinlínis skylda Alþingis að gera það.
Hæstv. ráðherra sagði að okkur hefði orðið býsna vel ágengt í baráttunni við ýmsa sjúkdóma sem nefndir eru faraldrar, eins og hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Þetta er alveg rétt. En það hafa bara aðrir þættir orðið út undan sem í sumum tilvikum er áreiðanlega auðveldara að ráða bót á. Það hlýtur að vera alvarlegt umhugsunarefni - og ekki aðeins umhugsunar- heldur er það brýnt rannsóknarverkefni sem ætti að ráðast í þegar í stað að kanna hvernig á því stendur að á sama tíma og slysum fækkar stórlega í grannlöndum okkar fjölgar slysunum hér. Og samt er ljóst að til Umferðarráðs berst ekki nema lítill hluti af tilkynningum um þau slys sem verða. Ég má segja að það séu a.m.k. þriðjungi fleiri sem koma á slysavarðstofuna í Borgarspítalanum í Reykjavík vegna umferðarslysa en skráðir eru í umferðarslysum hjá Umferðarráði þannig að við vitum ekki um vandann. Meðan slysunum fækkar í löndunum í kringum okkur fjölgar þeim hér. Hvers vegna? Það er spurning sem við höfum ekki ráð á að láta ósvarað.
Hv. þm. Guðrún Helgadóttir vék hér að því á hvaða tíma dags þessi slys ættu sér stað. S.l. laugardag var haldin ráðstefna um frv. til umferðarlaga á vegum Bindindisfélags ökumanna. Ólafur Ólafsson landlæknir flutti þar erindi og ef ég man rétt - og vitna nú til eftir minni - kom fram í máli hans að árin 1981 og 1982 hefði ekkert barn slasast í umferðinni í Reykjavík fyrr en eftir kl. 13 að degi til. Það þýðir m.ö.o. að rekinn hefur verið mjög harðvítugur áróður fyrir því að börn gæti sín á leið í skólann og úr skóla. Það hefur borið árangur. Slysin á börnunum verða eftir kl. 13 þegar þau eru komin heim og farin að leika sér, eins og hæstv. menntmrh. vitnaði í skýrsluna.
Varðandi reiðhjólaslysin er það alveg tvímælalaust að þar sem notkun léttra plasthjálma hefur verið gerð að skyldu liggur við að þessi slys hverfi. Þau hverfa ekki alveg en þeim stórfækkar. Höfum við efni á því að beita ekki svo ódýru ráði til að koma í veg fyrir höfuðmeiðsl á börnum og unglingum?
Hér þarf þjóðarvakningu eins og hefur orðið á öðru slysavarnasviði hér á landi, varðandi slysavarnir á sjó. Það varð þjóðarvakning á sínum tíma um það. Það sem til þarf að koma núna er eitthvað svipað um slysin á götunum og slysin í heimahúsum. Við getum ekki horft á þetta aðgerðarlaus lengur.