03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (856)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er upplýst og viðurkennt hvað hér er um að ræða. Í október s.l. hefur verið vísað fimm málum til allshn. sameinaðs þings og þau hafa engin verið tekin til meðferðar í nefndinni enn. Það er eðlilegt að það séu gerðar athugasemdir við slík vinnubrögð og ég vil þakka hv. 5. þm. Austurl. fyrir að gera það. Við þurfum allir hv. þm. að taka saman höndum og styðja hver annan í þeirri viðleitni að bæta vinnubrögð þingsins.

Það var mjög á dagskrá við endurskoðun þingskapa hvernig mætti bæta vinnubrögð þingnefnda og með tilliti til þess að þar með væri líka hægt að bæta vinnubrögð þingfunda og jafna þingmálum niður á þingtímann betur en gert hefur verið. Það var líka gert ráð fyrir því að þetta yrði gert og það er ákvæði um þetta í þingsköpum. Þar er líka ákvæði um það að forsetum ber að fylgjast með og leitast við að beina vinnubrögðum nefnda inn á þessar brautir.

Það má segja að það sé ámælisvert að forsetar skuli ekki hafa gripið fyrr inn í þetta sérstaka mál sem hér hefur verið hreyft. En það skal tekið fram að forsetar hafa verið að skipuleggja, ef svo mætti að orði komast, þau vinnubrögð sem þeir ætla að hafa í þessum efni með því að fylgjast með störfum nefnda og beina starfi nefnda inn á þær brautir sem heppilegar eru taldar fyrir þinghaldið. Þó að ég vilji ekki gera of mikið úr því hvað þessi undirbúningur er umfangsmikill er hann þó þess eðlis að við vorum ekki búnir að hefja raunverulega það starf sem við ætluðum að taka upp. En ég geri ráð fyrir að það verði einmitt hafið í þessari viku og þá verður þessi nefnd sem hér hefur borið á góma undir smásjá ekki síður en aðrar nefndir.

Ég vil til þess að fyrirbyggja allan misskilning, eins og alltaf hefur verið gert þegar þessi mál hefur borið á góma, hvort sem er hér í þingsölum eða við störf þeirrar nefndar sem vann að endurskoðun þingskapa, taka fram að auðvitað er engin breyting frá því sem verið hefur og hlýtur alltaf að vera að það er í valdi þingnefnda að ákveða hvernig þær afgreiða einstök mál.