03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (860)
77. mál, framleiðni íslenskra atvinnuvega
Flm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég flyt hér till. til þál. ásamt þeim Guðmundi J. Guðmundssyni, Karli Steinari Guðnasyni, Pétri Sigurðssyni og Stefáni Guðmundssyni. Þessi till. er á þskj. 84 og fjallar um átak til að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega. Hún var flutt hér á síðasta þingi, lenti í allshn. sþ., sem hér var til umræðu fyrir skömmu, en hlaut ekki afgreiðslu.
Ég vildi gjarnan byrja á því, herra forseti, að lesa texta till., með leyfi forseta, þar sem meginefnið kemur þar fram, hvað hér er átt við og hver er tilgangurinn með þessum tillöguflutningi. Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að leita eftir samvinnu við heildarsamtök vinnumarkaðarins um að hrinda af stað átaki til að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:
1. að leggja grundvöll að endurnýjuðum hagvexti og þar með að stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum,
2. að skapa forsendur fyrir þjóðarsamstöðu um að auka það sem til skipta er í þjóðfélaginu og deila þeim ávinningi af réttsýni,
3. að efna til þríhliða samvinnu ríkisvalds, launþega og atvinnurekenda um að bæta efnahag þjóðarinnar og innleiða ný vinnubrögð í samskiptum aðila á vinnumarkaðinum,
4. að kynna þjóðinni grundvallaratriði framleiðnihugsunar og skapa skilning á nauðsyn aðlögunar að síbreytilegum samkeppnisaðstæðum fyrir íslenskt atvinnulíf.
Ríkisstj. skipi níu manna stjórnarnefnd til að stýra framkvæmd þessa átaks. Verði hún skipuð þremur fulltrúum samtaka vinnuveitenda skv. tilnefningu VSÍ, þremur fulltrúum launþega skv. tilnefningu ASÍ og þremur fulltrúum ríkisvaldsins sem forsrh. skipar að höfðu samráði í ríkisstj. Sömu aðilar tilnefni jafnmarga varamenn. Forsrh. skipi formann stjórnarnefndarinnar úr hópi nefndarmanna.
Enn fremur ályktar Alþingi að framleiðniátak þetta verði unnið í tengslum við Iðntæknistofnun Íslands og jafnframt tengt öðrum tilraunastofnunum atvinnuveganna. Þá verði leitað aðstoðar annarra opinberra stofnana eftir því sem verkefnin bjóða hverju sinni. Þjóðhagsstofnun verði falið að fylgjast með þróun framleiðni í atvinnuvegum samhliða átakinu.
Loks ályktar Alþingi að átak þetta verði hafið á árinu 1985 og að eitt fyrsta verk stjórnarnefndar verði að skila ítarlegri tillögu til ríkisstj. um nánari tilhögun og framkvæmd málsins. Verði sú till., ásamt grg. um ákvörðun ríkisstj. um framkvæmd málsins, lögð fyrir Alþingi í byrjun þings haustið 1986.“
Herra forseti. Að mati flm. er hér um þarft og raunar mikilvægt mál að ræða. Við þær aðstæður, sem nú ríkja í íslensku efnahagslífi, er brýn nauðsyn á því að koma að nýju á hagvexti. Það er kunnara en frá þurfi að segja að á undanförnum árum hefur þjóðarframleiðslan annaðhvort staðið í stað, hagvöxturinn, eða dregist saman, verið neikvæð, ólíkt því sem var á árunum þar áður. Hefur svo rammt að þessu kveðið að eitt árið af þremur síðustu minnkaði þjóðarframleiðslan um 5,5% sem er gífurleg minnkun á einu ári og raunar mikið efnahagslegt áfall.
Sá kostur sem er hér einna nærtækastur að mati flm. og gæti raunar fyrst skilað árangri er að auka framleiðni í þeim fyrirtækjum sem þegar eru starfandi í landinu í dag og stuðla þannig að betri samkeppnisstöðu og arðbærari rekstri fyrirtækjanna. Þetta er að dómi flutningsmanna eitt brýnasta verkefnið nú í íslensku atvinnulífi og undirstaða þess að hægt sé innan skamms tíma að bæta lífskjörin í landinu ef á heildina er litið og bæta úr þeim samdrætti sem orðið hefur á síðustu árum. Með þessum tillöguflutningi er lagt til að stjórnvöld hrindi af stað slíku átaki í þessu efni í samvinnu við heildarsamtök vinnumarkaðarins því það er alveg ljóst að án samstöðu og samvinnu þeirra aðila, aðila vinnumarkaðarins, yrði þetta verk unnið fyrir gýg.
Auk hins efnahagslega ávinnings sem fengist af aukinni framleiðni í íslenskum fyrirtækjum sem starfandi eru í dag gæti átak í þessum efnum orðið grundvöllur - og það er kannske ekki síst mikilvægt - að bættum samskiptum aðila vinnumarkaðarins og jafnframt aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda. Ég hygg að fáum blandist hugur um að nauðsyn er slíkra bættra samskipta í íslensku þjóðfélagi í dag.
Um nokkurt skeið hefur verið lýst eftir breyttum vinnubrögðum í þessum efnum. Gætu nú einmitt verið aðstæður til þess að hefja samvinnu um það mál skömmu áður en aðilar vinnumarkaðarins hefja samninga á nýjan leik, nýja kjarasamninga nú um áramótin í vetur. Hér er því í hnotskurn gerð tillaga um að við nýtum tækifæri í íslenskum atvinnuvegum, í starfsemi íslenskra fyrirtækja, betur og gjörr en verið hefur á liðnum árum þannig að afraksturinn af hinum efnahagslegu þáttum í atvinnuvegunum verði meiri án þess að um sérstakan og aukinn tilkostnað sé að ræða sem er vitanlega mikilsvert atriði.
Hér er fyrst og fremst um framleiðsluþættina að ræða, þ.e. vinnuaflið, fjármagnið, hráefnið og orkuna, sem skipta hér mestu máli. Það má auka framleiðnina t.d. með því að bæta hráefnisnýtingu eða með því að nýta fjármagnið á arðbærari hátt en áður var gert og ekki er síst þörf á því síðasta í íslenskum fyrirtækjum. Hér er um að ræða að nýta betur framleiðsluþættina, hráefni, orku, fjármagn og raunar skipulag vinnuaflsins einnig, en við gerum í íslensku atvinnulífi í dag til þess að skapa aukin verðmæti í þeim fyrirtækjum sem fyrir eru í landinu án þess að leggja út í nýsköpun eða nýjar stórfelldar fjárfestingar.
Mikið hefur verið talað um stóriðju innan þingsala og utan. Við hana hafa verið bundnar miklar vonir og eru raunar enn þá bundnar miklar vonir. En það verður að segjast eins og er að horfur á því að við löðum hingað mörg stóriðjufyrirtæki erlend til samstarfs hafa farið heldur versnandi á síðustu misserum vegna þess hve orkuverð hefur farið lækkandi í ýmsum öðrum löndum. Ég held því að ekki sé síst ástæða, m.a. með þetta í huga, að gefa sérstakan gaum að þeim málum sem um er fjallað í þáltill.
Ég ætla ekki að fara að rekja, herra forseti, þær tölulegu upplýsingar sem birtar eru í grg. með þessari till.; það væri of langt mál. Það er þó fróðlegt að líta á framleiðnina, þ.e. sögulegar upplýsingar og staðreyndir varðandi framleiðnina á Íslandi miðað við það hver hún hefur verið í öðrum löndum. Tafla er birt með grg. þar sem framleiðnin á Íslandi 1976 er sett sem 100. Þá sést að framleiðni er svipuð á Íslandi og í Bretlandi á þeim tíma en framleiðni í þessum tveimur löndum - Bretland hefur á undanförnum árum verið kallað veiki maðurinn í Evrópu - Íslandi og Bretlandi var helmingi minni en framleiðni í Bandaríkjunum. Það er ekki nóg með að framleiðni sé lítil hér á landi heldur hefur framleiðniþróunin verið mjög hæg á undanförnum árum; þá er ég fyrst og fremst að tala um iðnað, í sjávarútvegi hefur hún verið góð.
Framleiðniþróunin - það er vitanlega það atriði sem skiptir einna mestu máli - var langörust í Svíþjóð, Danmörk, Vestur-Þýskalandi og Frakklandi á undanförnum árum, miklu örari en hér á landi eins og fram kemur í töflunni sem þessari tillögu fylgir. Við erum í hópi Breta, eins og ég segi, og erum þar lægstir hvað framleiðniþróun snertir í hópi 11 ríkja sem dæmi er tekið af. Ef við lítum sérstaklega á iðnaðinn, framleiðniþróun vinnuafls í iðnaðinum á tímabilinu 1974 - 1982, kemur í ljós að framleiðni í íslenskum iðnaði á þessu tímabili hefur aukist að meðaltali úr 89 stigum 1974 í 104 stig 1982. Það er framleiðniaukning um 2%. Nágrannalöndin ýmis eru með um helmingi meiri framleiðniaukningu, eða 4%. Það er vitanlega umhugsunarverð staðreynd. Þetta bendir til að framleiðnistig á Íslandi hafi síður en svo hækkað í samanburði við aðrar þjóðir frá árinu 1976 samkvæmt þeim töflum sem eru birtar með tillögunni.
Ef við lítum á þessar staðreyndir, sem sýna að við erum nálægt botninum í þessum efnum, er tvímælalaust full ástæða til þess að grípa til sérstakra ráðstafana. Og það ættu menn að geta sameinast um hvar í flokki sem þeir standa enda eru flm. tillögunnar úr öllum flokkum utan tveimur hinna nýjustu sem á Alþingi eiga fulltrúa.
Það er skoðun flutningsmanna þessarar tillögu að átakið til þess að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega gæti reynst árangursrík leið til að skapa þjóðarsamstöðu um að koma á ný á hagvexti hér á landi og stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum. Jafnframt gæti slíkt sameiginlegt átak skapað nýjar forsendur fyrir samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Það er hin þríhliða samvinna aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins sem er undirstöðuatriði þess að árangur náist. Í upphafi þarf að setja mjög vandaðar leikreglur um hvernig skipta eigi ávinningi af aukinni framleiðni og hvernig eigi að bregðast við afleiðingum, sem gætu verið röskun á störfum og högum fólks vegna breytinga á tækni og vinnuaðferðum, en slíkar breytingar eru þó óhjákvæmilega forsenda allrar framleiðniaukningar. Það er skoðun flm. að þetta framleiðniátak þurfi að ná til allra höfuðatvinnuvega landsmanna en megi ekki einskorðast við einstakar atvinnugreinar svo sem iðnaðinn. Það er þess vegna sem gert er ráð fyrir að ríkisstj. í heild, eða forsrh. fyrir hennar hönd, hafi frumkvæði um að skipa þá stjórnarnefnd sem á að stýra framkvæmd þessa átaks.
Þetta er, herra forseti, meginefni till. sem ég ætla ekki að orðlengja frekar um að þessu sinni. Aðalatriðið er að arðbærni og arðgæfni atvinnuvega sem fyrir eru í landinu verði mun meiri heldur en er í dag. Reynslan frá öðrum þjóðum og fordæmi hefur sýnt að framleiðni er þar verulega meiri en í íslenskum atvinnuvegum. Við eigum ekki að vera eftirbátar. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að við nýtum betur fjármagn, hráefni og afl vinnunnar í náinni samvinnu aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins.
Umr. (atkvgr.) frestað.