03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

92. mál, vistunarvandi öryrkja

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég vil fyrst leyfa mér að vekja athygli á því hversu fámennt en góðmennt er hér í þingsalnum. Hér eru fimm þm. Alþb. og forseti Sþ. Hér er enginn hæstv. ráðherra og hér stendur einn sjálfstæðisþingmaður í dyrum og fyllir nærri út í þær. En ég verð að segja það, herra forseti, að það hefði mátt ætla að hér yrðu allnokkrar umræður um þessa tillögu þegar hún er nú hér flutt í ljósi þeirrar sögu sem hún á. Það kemur mér nokkuð spánskt fyrir sjónir t.d. að aðrir flokkar en Alþb. virðast ekki hafa áhuga á eða hafa skoðun í þessum efnum.

Ég vil hverfa aftur til þess hvernig samhljóðandi till. var afgreidd fyrir tveimur vetrum síðan þegar hæstv. ráðherrum, heilbr.- og trmrh. og félmrh., var sýnt það traust hér á Alþingi - ég endurtek, þeim var sýnt það traust - að fela þeim framkvæmd málanna með ákveðnum leiðbeiningum af hálfu Alþingis sem felast í afgreiðslu á till. á sínum tíma. Ég leyfi mér að lesa, með leyfi forseta, þá rökstuddu dagskrá sem var niðurstaða þessa máls hér á 106. löggjafarþingi, en þar sagði:

„Í trausti þess að heilbr.- og trmrn. og félmrn. taki á þessu máli í samræmi við þá samþykkt stjórnarnefndar að stofna beri sérstaka sjúkradeild til vistunar og þjálfunar þeirra sem vegna slysa hafa fatlast svo andlega að jafna megi til meðfæddrar þroskaskerðingar, að staðið verði við fyrirheit um fjárframlag úr Framkvæmdasjóði fatlaðra svo að markmiði ályktunarinnar verði náð á þessu ári, telur Alþingi að ekki sé þörf á samþykkt þessarar tillögu og samþykkir að taka fyrir næsta mál á dagskrá.“

Það er alveg morgunljóst, herra forseti, að þessir hæstv. ráðherrar og þessi ráðuneyti voru ekki þessa trausts verð. Það er alveg ljóst. Sagan hefur skorið úr um það. Ég vil því leyfa mér að vona að það verði meiri reisn yfir afgreiðslu Alþingis á þessu máli þegar það vonandi kemur til afgreiðslu hér síðar á þinginu.

Hvernig stöndum við svo í dag gagnvart því að þessir aðilar, sem þarna er vitnað til, nái að hrinda þessum málum í framkvæmd, að leysa úr þessum vandamálum? Það er kunnara en frá þurfi að segja hvernig farið hefur verið með Framkvæmdasjóð fatlaðra með þeim tvennu fjárlögum sem afgreidd hafa verið síðan, þ.e. þeim lögum sem við nú störfum eftir og því fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir. Í bæði skiptin var um mikinn niðurskurð að ræða. Það að vísa þessu máli til ríkisspítalanna eins og þar er nú í pottinn búið er í mínum huga sorglegur brandari eða hvaða nafn sem því má gefa, það er svo öfugsnúið miðað við þær aðstæður sem þar er við að glíma.

Hvernig er að þeim stofnunum búið sem helst eiga að þjónusta á þessu sviði? Þar blasir ekkert við annað en niðurskurður, herra forseti, og samdráttur og það er fjær sanni en nokkurn tíma fyrr að ríkisspítalarnir geti af eigin rammleik tekið upp þessa þjónustu sem hér er verið að fjalla um. Það liggur alveg ljóst fyrir að þessi vandamál eru ekki að leysast, þau eru þvert á móti að hlaðast upp. Hver nýr einstaklingur, sem bætist í þennan hóp, er nær óleysanlegt vandamál eins og ástandið er í þessum málum í dag.

Ég fullyrði það sem stjórnarnefndarmaður í ríkisspítölunum, kosinn hér á hv. Alþingi, að þannig er ástandið nú og ég mun ekki sitja þegjandi undir því ef hv. Alþingi ætlar aftur að vísa þessu máli frá sér með þessum hætti. Ég mun þá annaðhvort segja mig úr þessari stjórnarnefnd eða með einhverjum öðrum ráðum láta það koma í ljós að ég er ekki sáttur við að mér sé ætlað að starfa sem fulltrúi Alþingis við slíkar aðstæður ef hv. Alþingi sýnir sjálfu sér og sínum kjörnu fulltrúum ekki meiri virðingu en þá að fela þeim verkefni sem fyrir fram er ljóst að þeir geti ekki innt af höndum.

Ég harma það, herra forseti, að hér skuli ráðherrabekkir vera svo galtómir sem raun ber vitni. Það hefði verið ánægjulegt að hafa hér hæstv. félmrh. Ég hefði talið æskilegt að ráðherrar þessara mála væru hér til viðræðu um þau en auðvitað má koma því á framfæri á síðari stigum málsins.

En ég vil spyrja forseta hér í lokin á máli mínu, þó að það heyri ekki til þessu dagskrármáli, til að þurfa ekki að kveðja mér hér hljóðs um þingsköp, hvort það sé meining að halda hér áfram fundi þegar enginn hæstv. ráðherra er viðstaddur, þegar ýmist einn eða enginn hv. þm. stjórnarliðsins er hér í þingsalnum og hvort honum þyki það sæmandi reisn þingsins að halda hér fram fundi með þessum hætti. Ég vil geta þess, sé virðulegum forseta Sþ. það ekki kunnugt, að við héldum hér fund í Nd. við mjög svipaðar aðstæður allan daginn í gær. Það vekur nokkra furðu mína ef það er orðin venja hér að halda fram fundum dögum saman, hvort heldur er í deild eða Sþ., við þessar aðstæður án þess að a.m.k. athugasemdir falli um það af hálfu hæstv. forseta.