03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

90. mál, langtímaáætlun um jarðgangagerð

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Það er nú ekki nema sjálfsagt að verða vel við því þegar sá viðburður skeður hér að hv. stjórnarliðar taka þátt í umræðum og reyna að leysa þá úr þeim spurningum sem þeir hafa fram að færa eftir því sem kostur er.

Eins og segir í grg. og fyrirspyrjandi, hv. þm. Gunnar G. Schram, 2. þm. Reykn., réttilega nefndi þá eru nefndar kostnaðartölur allt frá u.þ.b. 40 millj. kr. á hvern km eins og kostnaður var talinn vera í Færeyjum og upp í 100 millj kr. Og þetta er verðlag ársins 1984, segir þar innan sviga, og mun vera meðalverðlag eða u.þ.b. meðalverðlag þess árs.

Nú veit hv. þm. örugglega jafnvel og ég ef ekki betur hversu mikil verðbólgan hefur verið í tíð þeirrar hv. ríkisstj. sem hann styður. Ég er alveg viss um að til að færa þetta til meðalverðlags og framkvæmdakostnaðar ársins 1985 þá megi bæta einum 30% þarna ofan á. Ef síðan ætti að færa þetta á verðlag fjárlaganna, þ.e. desemberverðlag þessa árs, þyrfti sennilega að bæta þar enn einhverju við. En þetta er reikningsdæmi sem í sjálfu sér er auðvelt að framkvæma hafi menn forsendurnar fyrir framan sig og ég held að það nægi að ég gefi upp að þessar tölur, sem við settum þarna inn, byggðu nokkurn veginn á meðalverðlagi ársins 1984. Það er einmitt einn af þeim liðum sem við leggjum til að verði athugaðir mjög vandlega, þ.e. þær kostnaðartölur sem þarna liggja á bak við, vegna þess að Færeyingar t.d., sem hafa farið þá leið að setja á fót sérhæfðan vinnuflokk sem vinnur árið um kring og færir sig frá einu verki til annars, hafa náð þeim mikla árangri að koma kostnaðinum verulega niður frá því sem hann var þegar þeir buðu verkin út en þá sátu gjarnan danskir verktakar að þeirri gullnámu.

Vegagerð ríkisins hefur eðli málsins samkvæmt, og sem rétt er í hennar stöðu, verið mjög varkár í kostnaðaráætlunum og reynt að tryggja það að vanreikna ekki kostnað í þessum efnum. Ég geri mér því vonir um það að raunverulegur tilkostnaður yrði nokkru lægri en þær tölur sem Vegagerðin hefur með fyllstu varkárni látið frá sér fara og eru, eins og ég sagði, allt að 100 millj. kr. á km á verðlagi ársins 1984.

Samanburður við útboð jarðganga hér á Íslandi, þ.e. í Blönduvirkjun, bendir einnig til þess að venjuleg jarðgangagerð við íslenskar aðstæður ætti ekki að þurfa að kosta alveg jafnmikið og þar er um talað. En ég tel ekki rétt né tímabært að vera að fullyrða um niðurstöðu eða tölur beint út úr því verki sem verið er að vinna og að hluta til er auðvitað ekki ljóst hver endanlegur kostnaður þar verður fyrr en reikningar fyrir aukaverk og sérstaka liði eins og sprautun og annað slíkt, sem ekki er inni í útboðinu, liggja fyrir.

Það er mjög ánægjulegt ef þetta er frumleg tillaga og ég er alveg í sjöunda himni yfir því að hafa það nú skráð í þingtíðindum, og við flm., að við séum frumlegir í tillögugerð. Það gerir hins vegar að mínu viti ekki tillöguna neitt óskaplega frumlega þó það sé afturhaldsríkisstjórn sem situr í landinu og skeri og skeri. Það er bara harmleikur sem við búum við og við vonum öll, eða a.m.k. flest, að linni og þá renni upp betri tími með blóm í haga og menn geti aftur snúið sér að því að sinna slíkum þarfaverkefnum. Ég er hins vegar alveg viss um það að þetta er tillaga sem á ákveðnum landsvæðum er fylgst mjög náið með vegna þess að ekki þarf lengi að fara um þessa landshluta, Vestfirði, Austfirði og Mið-Norðurland, til þess að finna hversu mjög þessi mál brenna á því fólki sem þar býr. Ég þekki t.d. vel til í Ólafsfirði og þar er þetta nær undantekningarlaust sá liður sem fólkið þar nefnir fyrst, á undan hlutum eins og heilsugæslu, skólamálum og annarri uppbyggingu þjónustu og mannvirkja, sem gjarnan er þó ofarlega á blaði hjá mönnum annars staðar. Ég held því að menn verði að gera sér fyllilega grein fyrir því að væri hlutunum forgangsraðað af því fólki þá yrði tillaga sem þessi mjög framarlega. Ég leyfi mér að halda því fram.

Varðandi það sem hv. þm. Eiður Guðnason sagði þá þakka ég honum jákvæðar undirtektir undir tillöguna. Ég vil róa hann með því að þó jarðfræðilegar aðstæður víðast hvar í Noregi séu gerólíkar því sem hér er vegna þess að gífurlegur aldursmunur er á þessum tveimur löndum þá er það þó svo að jarðgangagerð á Íslandi yrði fyrst og fremst stunduð á þeim svæðum landsins þar sem aðstæður eru bestar, þ.e. blágrýtissvæðunum, þar sem jarðlögin eru þéttust og elst og mest samanþjöppuð og hraunlögin gjarnan þykk. Því er í langflestum tilfellum um skárri aðstæður að ræða á Austfjörðum og Vestfjörðum heldur en svona meðalaðstæður á Íslandi vegna þess að menn eru komnir fjær hinu eldvirka belti og jarðlög orðin, eins og ég sagði, þéttari og auðveldari viðureignar í flestum tilfellum. Þess vegna er því nú slegið föstu að framkvæmdir hefjist í Ólafsfjarðarmúla að þær eru í raun og veru þegar byrjaðar, hófust með fjárveitingu upp á 4 millj. kr. sem var á fjárlögum þessa árs og var til þess að hreinsa frá gangamunnum beggja vegna Múlans. Sú ákvörðun lá reyndar fyrir í samþykkt langtímaáætlunar fyrir nær fjórum árum síðan, þegar hún var upphaflega sett, að jarðgöng um Ólafsfjarðarmúla yrðu aftast svonefndra Ó-vega. Og út frá því var þessi tillaga unnin að ekki var reiknað með því að sú stefnumörkun Alþingis myndi breytast, þó ég taki vissulega undir það að æskilegra hefði verið að fyrir hefði legið hagkvæmnismat og samanburður Ólafsfjarðarmúlans við aðra mögulega valkosti. Það er vissulega hárrétt hjá hv. þm. En þetta lá svona fyrir og enn þá síður nú í ár fannst mér ástæða til þess að draga það í efa að þessari stefnu Alþingis yrði haldið, að hefja framkvæmdirnar í Ólafsfjarðarmúla, enda hefur þegar verið gert ráð fyrir fjárveitingum á næsta ári. Þ.e. á árinu 1987 verður fyrsta umtalsverða framkvæmdafjárveitingin til þess verks og síðan áfram á síðasta tímabili langtímaáætlunar.