03.12.1985
Sameinað þing: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (870)

118. mál, námsbrautir á sviði sjávarútvegs

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Þeir fimm eða sex hv. þm. sem hér eru nú verða vitni að stórmerki tvisvar á sömu klukkustund, að stjórnarþingmenn taka til máls um þáltill.

Ég stend upp fyrst og fremst til að taka undir þessa till. Ég verð að telja að hér sé á ferðinni tilraun, að mínu mati, til að vekja athygli á geigvænlegu vandamáli sem nú steðjar að íslenskum fiskiðnaði, en það er fólksekla, það er áhugaleysi ungs fólks um vinnu í sjávarútvegi. Ég veit að mjög margir innan greinarinnar hafa af því verulegar áhyggjur og margir eru sannfærðir um það að lítils háttar launahækkun starfsfólks í fiskvinnslu dugi ekki til að hvetja fólk til starfa í þessari þýðingarmestu atvinnugrein okkar. Það er sjálfsagt ekki vafi á að launahækkun til samanburðar við aðra er nauðsynleg. Þetta er vinna sem ekki er sérstaklega skemmtileg. Ég veit það af eigin reynslu. Ég veit að það þarf mikið átak til að gera hana áhugaverðari. Það þarf m.a. aukna sjálfvirkni. Það þarf að vekja áhuga fólks á þessari þýðingarmiklu vinnu, m.a. með menntun, kennslu, fræðslu um hversu þýðingarmikið þetta er og handbragðakennsla er vissulega mikil nauðsyn þar.

Hv. flm. hefur líklega tekið eftir því, reyndar efast ég ekki um að hann hafi tekið eftir því, að ráðherrar hafa, ég held hæstv. sjútvrh. og menntmrh. báðir tveir, látið í það skína að e.t.v. væri rétt að sameina kennslu í sjávarútvegsgreinum undir ráðuneyti sjávarútvegsmála. Er þar átt fyrst og fremst við nám í stýrimannaskóla og fiskvinnsluskóla þó að fleiri námsbrautir kæmu þar til greina. Sérskólar landbúnaðar, bændaskólarnir, hafa að mörgu leyti haft að því er virðist rýmri fjárráð og betri framgang sinna mála en sambærilegar stofnanir. Er ekki talið ólíklegt að það sé vegna þess að þeir heyra undir landbrh.

En aðalerindi mitt var að taka undir þessa tillögu. Ég held að hún sé allra góðra gjalda verð.