03.12.1985
Efri deild: 22. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
127. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Frsm. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til 1. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Eins og fram kom þegar frv. var lagt fram hér í hv. Alþingi er það efnislega samhljóða lögum nr. 130 frá 1984 og framlenging á þeim lögum og er gert ráð fyrir að skatthlutfall haldist óbreytt.
Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja þeim sem fram kunna að koma.
Ég hef engu við þetta að bæta. Ekki hafa komið upp deilur um þetta frv. þannig að ég legg fram álit fjh.- og viðskn. svohljóðandi.