04.12.1985
Neðri deild: 23. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (889)

158. mál, viðskiptabankar

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Alloft á síðasta þingi voru málefni bankanna til umræðu á hv. Alþingi og svo virðist einnig ætla að verða raunin á á yfirstandandi þingi. Af þeirri umræðu sem fram hefur farið hér á Alþingi um málefni bankanna er ljóst að ýmsir alvarlegir gallar eru á bankalöggjöf okkar og ýmislegt hefur einnig komið fram sem sýnir ljóslega að Alþingi verður að taka málefni bankanna og starfsemi þeirra miklu fastari tökum en verið hefur, m.ö.o. að sinna sínu aðhalds- og eftirlitshlutverki bæði með harðari löggjöf og virkara aðhaldi og eftirliti en verið hefur fram til þessa.

Þegar frv. um viðskiptabanka var hér til umræðu á s.l. vetri benti stjórnarandstaðan á ýmislegt í starfsemi bankanna sem nauðsynlegt væri að ráða bót á með hertum ákvæðum í löggjöf og lagði fram ýmsar tillögur þar að lútandi. Flestar tillögur stjórnarandstöðunnar til að koma á virkara og betra eftirliti með starfsemi bankanna og til að tryggja hag innlánsstofnana og sparifjáreigenda náðu ekki fram að ganga.

Ýmislegt hefur vissulega komið fram síðan lög um viðskiptabankana voru samþykkt á síðasta þingi sem sýnir svo að ekki verður um villst að ýmsar tillögur stjórnarandstöðunnar áttu ekki einungis við full rök að styðjast heldur og mjög mikilvægt og brýnt að setja þau afriði í löggjöf. Í grg. með þessu frv., sem hér er til umræðu, um breytingu á lögum um viðskiptabankana er vissulega réttmætt að að þessu sé vikið og get ég tekið undir margar af þeim röksemdum sem fram eru færðar í grg. frv., ekki síst þá sem snýr að bankaleynd og hve mjög er takmarkaður aðgangur Alþingis að upplýsingum um starfsemi bankanna.

Ég get t.d. fyllilega tekið undir það að seta alþm. í bankaráðum hefur ekki tryggt beinan og milliliðalausan aðgang að ýmsum nauðsynlegum upplýsingum til að Alþingi geti sinnt eftirlitshlutverki sínu og haldið uppi því aðhaldi sem því ber um starfsemi bankanna. Því er vissulega vandséð hvaða tilgangi það þjónar að alþm. eigi sæti í bankaráðum.

Í umræðum um Hafskipsmálið hér á dögunum á Alþingi báru alþm. sem sæti eiga í bankaráðum fyrir sig bankaleynd þegar þeir voru krafðir um lánafyrirgreiðslu Útvegsbankans við Hafskip. Þegar ekki var á síðasta Alþingi gengið lengra en svo að spyrja um heildarfyrirgreiðslu viðskiptabanka og þriggja. stærstu sparisjóða til fimm stærstu lántakenda einstakra banka og sparisjóða í árslok 1983 og 1984 var einnig borin fyrir sig bankaleynd. Á engan hátt hefði þó verið brotinn trúnaður við viðskiptavini með því að gefa Alþingi upplýsingar um heildarfyrirgreiðslu fimm stærstu aðila innlánsstofnana því að ekki var spurt um nöfn í þessu sambandi. En ekkert svar fékkst, bara borin fyrir sig bankaleynd. Spurt var um hlutfall heildarfyrirgreiðslu hvers lánþega um sig af eigin fé stofnunarinnar. Ekkert svar við því, bara borin fyrir sig bankaleynd. Þessar upplýsingar hefði þó verið mikilvægt að fá fram á s.l. vetri með tilliti til þeirrar stöðu sem upp er komin núna varðandi viðskipti Útvegsbankans við Hafskip.

Spurt var einnig á s.l. vetri um tryggingar að baki lánafyrirgreiðslu bankanna til stærstu lántakenda. Engin svör fengust þar heldur, bara borin fyrir sig bankaleyndin. Auðvitað er hér gengið of langt í að meina Alþingi sjálfsagðar upplýsingar til að Alþingi geti haldið uppi nauðsynlegu aðhaldi og eftirliti því að þessar spurningar hefðu, þó svarað hefði verið, í engu brotið trúnað bankanna við sína viðskiptavini. Meira að segja hæstv. fyrrv. viðskrh. hafði ekkert við þá skoðun bankaráðanna að athuga að bankarnir meinuðu Alþingi þessar upplýsingar. Þess vegna er fyllilega réttmætt að halda því fram að bankaráðin og bankastjórnir misnoti ákvæði bankalöggjafarinnar um bankaleynd og noti hana sem skálkaskjól til að meina Alþingi sjálfsagðar upplýsingar. Engu að síður eru bankastjórnirnar og bankaráðin verðlaunuð á hv. Alþingi fyrir að meina Alþingi sjálfsagðar upplýsingar og enn hert á bankaleyndinni með samþykkt laga á síðasta þingi um viðskiptabankana.

Á síðasta þingi gerði ég mál þetta að sérstöku umræðuefni í ræðu minni um frv. um viðskiptabanka. Ég flutti líka till. um að lögfest yrði, líkt og í okkar nágrannalöndum, að innlánsstofnunum yrði bannað að lána einum viðskiptaaðila meira en nam ákveðnu hlutfalli af bókfærðu eigin fé banka.

Þeir atburðir sem nú hafa skeð sýna ljóslega að þessi till. var meira en tímabær þegar upplýst er að einn banki hefur lánað einum viðskiptaaðila fjármagn sem er mörg hundruð milljónir fram yfir eiginfjárstöðu bankans. Ég mun líkt og hv. þm. Guðmundur Einarsson, sem endurflytur tillögur með þessu frv. sem felldar voru við afgreiðslu frv. um viðskiptabankana, flytja till. um að banna bönkum að lána viðskiptavinum meira en nemur ákveðnu hlutfalli af eigin fé bankans og mun fljótlega leggja fram frv, þar að lútandi.

Eins hlýtur Alþingi að verða að endurskoða á nýjan leik ákvæði laganna um bankaleynd og að nýtt ákvæði verði samþykkt sem tryggi Alþingi eðlilegar og sjálfsagðar upplýsingar sem varða hag og rekstur banka.

Í 25. gr. laga um viðskiptabanka eru bankaráðsmenn, bankastjórnir og aðrir starfsmenn viðskiptabanka bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar hag viðskiptamanna bankans. Ég endurtek að þar segir „viðskiptamanna bankans“, en það er vissulega spurning hvort þetta ákvæði eigi við þegar hagur bankans og sparifjáreigenda er í húfi.

Það hefur einnig komið í ljós í þeim umræðum sem fram hafa farið og vegna upplýsinga sem komið hafa fram af hálfu forsvarsmanna bankaeftirlitsins að bankaeftirlitinu eru settar mjög þröngar skorður til að sinna sínu hlutverki og ljóst að í þessu ákveðna máli varðandi Hafskip hefur ekki verið farið eftir ábendingum bankaeftirlitsins. Þetta styrkir þá skoðun mína, sem fram kom á síðasta þingi, að auka þurfi sjálfstæði bankaeftirlitsins. Vil ég, með leyfi forseta, vitna í þau orð, sem ég sagði um það mál á síðasta þingi, en þar kom fram:

„Í fyrsta lagi er það mín skoðun að nú, þegar við höfum frv. að nýrri bankalöggjöf til meðferðar, þá sé brýnt að styrkja stöðu bankaeftirlitsins og veita því aukið sjálfstæði þannig að eftirlitshlutverki þess verði gefið aukið vægi. Ég bendi á að með þessu frv. eru enn auknar skyldur bankaeftirlitsins og því brýnt að umfjöllun eigi sér einnig stað um stöðu þess til að sinna sínu mikilvæga hlutverki sem er strangt eftirlit og aðhald með innlánsstofnunum. Ég tel að bankaeftirlitinu séu að ýmsu leyti settar þröngar skorður og það hafi ekki nægjanlegt sjálfstæði eða nauðsynlegt svigrúm til að sinna skyldum sínum og eftirliti með starfsemi bankanna. Þau ákvæði sem nú er að finna um bankaeftirlitið eru í 10. gr. laga um Seðlabankann. Þar er kveðið á um að bankaeftirlitið sé í höndum Seðlabanka Íslands. Þar með lýtur bankaeftirlitið stjórn Seðlabankans, en það tel ég óeðlilegt því að bankaeftirlitið verður óhjákvæmilega virkari eftirlitsaðili og fær frekara svigrúm til að halda uppi nauðsynlegri gagnrýni, eftirliti og aðhaldi að því er varðar alla þætti bankamála og á þær ákvarðanir sem teknar eru varðandi bankastarfsemi ef það starfaði sjálfstætt og óháð valdi eða stjórn Seðlabankans. Auk þess tel ég að kveða verði nánar á um eftirlit, verkefnasvið og vald bankaeftirlitsins en nú er gert í lögum. Því tel ég að jafnframt því sem við fjöllum um nýja bankalöggjöf eigi um leið að breyta þeim lögum sem gilda um bankaeftirlitið og veita því aukið svigrúm og sjálfstæði. Ég tel að eðlilegt hefði verið að slíkt frv. væri til umfjöllunar samfara þessu frv., ekki síst í ljósi þeirra auknu skyldna sem lagðar eru á bankaeftirlitið í því frv. sem hér er til umfjöllunar.“

Það er því ljóst, herra forseti, að það mál sem nú er í sviðsljósinu varðandi viðskipti Hafskips og Útvegsbankans staðfestir rækilega að auka þarf sjálfstæði bankaeftirlitsins. Ég mun því í fyrsta lagi flytja frv. um breytingar á lögum um viðskiptabankana þar sem kveðið er á um 1) að aflétta bankaleyndinni þegar um er að ræða upplýsingar sem snerta hag viðskiptabankanna og sparifjáreigenda, 2) að innlánsstofnunum verði bannað að lána einum og sama viðskiptaaðila hærri upphæð en sem nemur ákveðnu hlutfalli at eiginfjárstöðu innlánsstofnunar og 3) ákvæði um að auka sjálfstæði bankaeftirlitsins þannig að bankaeftirlitið hafi nauðsynlegt svigrúm til að sinna sínu mikilvæga hlutverki sem er strangt eftirlit og aðhald með innlánsstofnunum.

Hvað snertir það frv. sem hér er til umræðu, þá styð ég það ákvæði að alþm. verði óheimil seta í bankaráðum, enda hefur Alþfl. á mörgum undanförnum árum haft þá reglu að tilnefna ekki þm. í bankaráð.

Að því er varðar það ákvæði frv. sem kveður á um að viðskrh. skipi bankaráð viðskiptabankanna fæ ég ekki séð að það ákvæði tryggi það, sem ég hygg að vaki fyrir flm., að bankaráðin verði ekki pólitískt skipuð. Ég hygg að eina breytingin sem verði við það að viðskrh. skipi alfarið bankaráðin verði sú tilhneiging að skipa fulltrúa þeirra flokka sem með stjórn landsins fara hverju sinni. Þá tilhögun tel ég síst betri en þá, sem nú gildir, að Alþingi kjósi bankaráðin.

Í þessu sambandi er það umhugsunar virði hvort þá leið bæri ekki heldur að skoða að aðilar vinnumarkaðarins, t.d. heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda, hefðu rétt til að tilnefna í bankaráðin og spurning einnig hvort ekki væri tímabært að sparifjáreigendur stofnuðu með sér samtök sem t.a.m. hefðu rétt til að tilnefna fulltrúa í bankaráðin.

Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að hafa fleiri orð um þetta mál á þessu stigi. Þm. Alþfl. styðja það ákvæði þessa frv. að alþm. verði óheimil seta í bankaráðum, enda hefur sú regla gilt í mörg undanfarin ár hjá Alþfl. eins og ég áður nefndi.

Ákvæði frv. um að viðskrh. skipi bankaráðin tel ég ekki til bóta og tel að flm. ætti að hugleiða betur hvort sú breyting sem hér er lögð til nái því fram sem vakir í raun og veru fyrir flm. í því efni.