04.12.1985
Neðri deild: 23. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í B-deild Alþingistíðinda. (891)
158. mál, viðskiptabankar
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég kem í ræðustól til að lýsa í meginatriðum stuðningi mínum við frv. sem hér liggur fyrir á þskj. 173. Það kann vel að vera að nánar þurfi að athuga hvernig bankaráð verði skipuð, en það er alveg ljóst að það er óviðunandi að alþm. gegni þeim störfum. Bankaleynd og seta alþm. í bankaráðum eru auðvitað algerlega í andstöðu hvort við annað og gerir meiri skaða en gagn, eins og komið hefur fram.
Það er eftirtektarvert, herra forseti, að í hvert skipti sem málefni bankanna koma til umræðu á hinu háa Alþingi þegja bankaráðsmenn, sem hér eiga sæti, venjulega þunnu hljóði. (PP: Eigum við ekki að kalla á Garðar svo að hann heyri í þér?) Ekki hefur hann gerst langorður um bankamál í ræðustól eftir því sem ég best veit og sit ég þó nokkuð meira í þingsölum en ýmsir aðrir þm. Það kann reyndar að vekja nokkra furðu, þegar þessi mál eru á dagskrá, að ekki skuli vera fleiri hv. þm. staddir í salnum á meðan Alþingi, bankaráð og ríkisstj. hafa í stuttu máli opinberað fyrir alþjóð að hafa orðið sér gersamlega til skammar í stórkostlegu vanskilamáli sem nú vekur óhug almennings.
Ég hef undanfarið unnið að því fyrir hönd míns þingflokks að búa til frv. til laga um það sem ég tel að sé mikilvægt í þessum málefnum bankanna, frv. til laga um að bankaeftirlitið verði sjálfstæð stofnun. Það frv. verður lagt fram á Alþingi á allra næstu dögum. Það er óviðunandi að Seðlabankinn hafi yfirráð yfir bankaeftirlitinu og ótrúlegt að hugsa sér að sú stofnun skuli hafa sjö starfsmenn. Segir sig sjálft að bankaeftirlitið getur á engan hátt sinnt þeim skyldum sem það ætti að hafa.
Mergurinn málsins er kannske líka sá að bankar í landinu eru stjórnlausir. Þeir eru stjórnlausir og Seðlabankinn er líka stjórnlaus. Það er þetta ábyrgðarleysi sem einkennir alla stjórn peningamála í landinu.
Það er jafnljóst að alþm. hafa verið stórlega blekktir í tíu ár varðandi Hafskips- og Útvegsbankamálið. Ef ég man rétt var samþykkt við afgreiðslu fjárlaga fyrir nokkrum árum að veita ríkisstj. heimild til að taka 5 milljarða gkr. erlent lán til að bjarga Útvegsbanka Íslands. Hverjar voru skýringarnar? Sjávarútvegurinn gengi illa. Mjög hefði verið þjarmað að bankanum. Skýringar í smáatriðum man ég ekki svo gjörla og hafði satt að segja ekki tíma til að lesa ræður þær sem fylgdu þessari beiðni. Þessu trúðu alþm. Nú er íslensk alþýða að borga þessi erlendu lán. Ég vil leggja á þetta áherslu: Það eru skattborgarar þjóðarinnar sem eru að borga þessi lán. Það er þess vegna sem fólk er að missa húsin sín ofan af sér, af því að þessir peningar fóru beint í sömu hít og nú vantar peninga í í Útvegsbanka Íslands. Það var nefnilega logið að Alþingi og það er ekki í fyrsta skipti og ekki í eina skiptið. Það er þess vegna sem ég held að það sé algerlega óhjákvæmilegt að taka málefni bankanna algerlega til endurskoðunar.
Ég vil minna menn á að ákvæðið sem er í lögum um Seðlabanka um bankaleynd er hert í lögum nr. 86 frá 1985, um viðskiptabanka. Í lagagreininni í lögum um Seðlabanka segir einungis að bankaráðsmenn, bankastjórar og aðrir starfsmenn viðskiptabanka séu bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar hagi viðskiptamanna bankans o.s.frv. og sú bankaleynd skuli gilda eftir að þeir hafa látið af störfum. Í lögum um viðskiptabanka er bætt inn um mál sem leynt skuli fara samkvæmt lögum að þeir veiti enga vitneskju nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þetta var nefnilega ekki í lagagreininni um bankaleynd í lögum um Seðlabanka Íslands. Enn á að gulltryggja að alþm., að ég tali nú ekki um þjóðina sjálfa, fái sem minnsta vitneskju um málefni bankanna.
En það eru ekki aðeins bankarnir sem eru stjórnlausir hér í landi. Peningamál eru með öllu stjórnlaus. Hér hef ég margspurt hvenær sé að vænta laga um greiðslukortaviðskipti. Tvisvar sinnum a.m.k. hefur hæstv. viðskrh. svarað því til að þetta sé alveg að koma, það sé verið að búa til þessi lög. Þau eru ekki komin enn. Ég gæti t.d. spurt bankayfirvöld, og reyndar hef ég gert það en engin svör fengið, af hverju greiðslukortafyrirtækjum leyfist að leggja mánaðar dráttarvexti á alla skuldina þó að maður komi einum eða tveimur dögum of seint til að greiða greiðslukortareikning sinn. Svörin eru: Stjórnir greiðslukortafyrirtækjanna hafa ákveðið þetta. Og hverjir sitja þar? Tökum t.d. Visa Ísland. Þar sitja fulltrúar þeirra banka sem aðild eiga að fyrirtækinu. Það eru þeir sem ákveða að þannig skuli farið að að 3,75% séu lögð á skuldina í heilan mánuð hvort sem menn greiða einum degi eða 20 dögum fyrr eða seinna. Þó ekki væri annað er þetta beinlínis letjandi fyrir fólk sem er hvort sem er orðið einum degi of seint. Auðvitað lærir fólk á kerfið og borgar 28 dögum seinna. Því ekki það? Það fær sams konar dráttarvaxtaskuld. En um þetta eru engin lög og ég sé ekki fram á að hér verði lagt fram frv. að sinni um þessi fyrirtæki.
Þá getum við spurt um verðbréfamarkaðinn. Vitaskuld á bankaeftirlitið að hafa umsjón með rekstri þessara fyrirtækja, auk þess sem spyrja mætti að sjálfsögðu í okkar litla þjóðfélagi: Hvers vegna þurfum við verðbréfamarkaði? Ég hef spurt og ég hef engin svör fengið. Hæstv. fjmrh. sagði í ræðu sinni fyrir stuttu að það væri til þess að við gætum talist jafningjar annarra þjóða. Mér þykir það ekkert svar. Ég held að það geti ekki verið sama þörf fyrir verðbréfamarkað hér og í Bandaríkjunum. Ég er ekki viss um að hæstv. fjmrh. geri sér grein fyrir að verðbréfamarkaður gerir auðvitað ekkert annað en að draga fé út úr bönkunum. Maður gæti þess vegna spurt: Hvers vegna geta bankarnir ekki boðið upp á þessa þjónustu? Þó ekki alla vænti ég. Ef verðbréfamarkaðirnir geta boðið betri ávöxtun fjár, hvers vegna geta ekki bankarnir tekið þá þjónustu að sér?
En auðvitað eru þessar stofnanir engu bankaeftirliti háðar. Seðlabankinn veður áfram án þess að nokkuð geti stöðvað hann. Það nægir ekki að hv. þm. Sjálfstfl., Alþfl., Alþb. og eflaust allra stjórnmálaflokkanna, þó ég muni það ekki rétt í bili, flytji tillögu eftir tillögu um að rekstri þessarar stofnunar sé hagað öðruvísi. Hún veður áfram samt.
Ég minni á að fyrir nokkrum árum bar ég fram fsp. hér á Alþingi um það til hvers og fyrir hvern bókasafn Seðlabankans væri. Fæstir þm. vissu að búið var að byggja stórhýsi yfir þá stofnun. Þar vinna nú hátt í tug manna. Eftir stendur að enginn fær að koma inn í þetta bókasafn og það er ekki fyrir almenning. Þessi stofnun er eitt best búna bókasafn í landinu og var það ár sem ég flutti fsp. mína fyrst, sem mig minnir að hafi verið 1982, meira en hálfdrættingur í innkaupum á bókum á við Háskólabókasafn. Þar er nýtísku tölvuútbúnaður sem fjöldamargar menntastofnanir í landinu sárvantar. Við getum ekki lokið við þjóðarbókhlöðu, en það skortir ekkert í bókasafni Seðlabankans. Og ég vakti einnig athygli á því að rekstrarreikningar þessarar stofnunar eru auðvitað hvergi sjáanlegir, þeir eru ein eða tvær línur í ársskýrslu Seðlabankans. Jú, jú, menn eru voðalega hissa á þessu. Þetta vakti athygli alþm. því fæstir alþm. vissu um þetta nýja hús í Einholti 4.
En svo gerist ekki neitt. Það er enginn ábyrgur fyrir neinu, hvorki bankaráð, bankastjórar né alþingismenn og ekki einu sinni ríkisstjórnin. Svo sitjum við hér, dag út og dag inn, nema þeir sem eru svo skynsamir að vera ekkert að því að sitja, og höldum að við stjórnum þessu þjóðfélagi. Ég held við ættum að horfast í augu við það að við gerum það ekki. Bankakerfið veður áfram án þess að spyrja kóng eða prest og hæstv. viðskrh., hver sem hann er, hefur ekki hugmynd um hvað hann er að gera og stjórnar ekki neinu.
Ég held, herra forseti, að það sé mál til komið að alþm. læri af mistökum sínum sem eru auðvitað þegar orðin alþjóðlegt hneyksli hvað varðar málefni Hafskips og Útvegsbankans og má áreiðanlega lengi leita annars slíks.
Það er líka óheyrt í öllum lögum um seðlabanka að það sé ekki gulltryggt að seðlabankastjóri sitji hvergi í ráðum eða nefndum eða stjórnum fyrirtækja. Þess þarf ekki á Íslandi. Þar geta sömu mennirnir setið báðum megin við borðið. Það er svona álíka og að hugsa sér að franski konsúllinn á Íslandi bjóði hæstv. iðnrh. í kokkteil. Þetta er auðvitað alveg fráleitt að sömu mennirnir gegni embættum á þennan hátt. Og ég held að Alþingi ætti að gleyma öllum flokkaerjum í sambandi við bankamál og taka höndum saman um að hreinsa til í því svínaríi sem þar á sér stað. Menn skyldu hafa það í huga að þeir sem mest skulda borga ekki brúsann; það eru vinnuþrælarnir á Íslandi sem eru nú að borga fyrir mistök bankaráðsmanna, bankastjóra, alþingismanna og ráðherra, og þó að þeir striti dag út og dag inn geta þeir ekki haldið íbúðum sem þeir hafa verið að reyna að koma yfir fjölskyldur sínar. Ég held nefnilega að nú loksins sé fólk að skilja samhengi þessara hluta og þess vegna verði það krafa þjóðarinnar að Alþingi fari ekki heim af þessu þingi fyrr en búið er að taka til í þessu kerfi.
Varðandi frv. hv. þm. Guðmundar Einarssonar á þskj. 173 hika ég ekki við að veita því stuðning minn. Ég mundi hins vegar leggja til að athugað yrði nánar atriðið sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir gerði að umtali hér áðan, að aðilar vinnumarkaðarins kynnu að hafa einhvern tilnefningarrétt í bankaráð, því að það eru nefnilega ekki bankaráðin og bankastjórarnir og alþm. og ráðherrar sem eiga þessa peninga, það eru launþegarnir í landinu, svo það er ekkert óeðlilegt við að launþegasamtökin hefðu þar eitthvað um að segja.
Ég mun fara nánar út í þessi mál þegar frv. til laga um eftirlit með bankastarfsemi, sem lagt verður fram á morgun eða þar næsta dag, verður flutt. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.