05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
86. mál, bann gegn geimvopnum
Björn Dagbjartsson:
Herra forseti. Ég vildi ekki láta hjá líða að leggja hér nokkur orð í belg. Það er rétt sem hv. flm. sagði að nýlokið er fundi æðstu manna í austri og vestri án sýnilegs árangurs eins og venjulega. Að vísu keppast menn við, bæði í austri og vestri, að lýsa því yfir að vel hafi gengið á fundinum og að leiðtogarnir hafi verið hressir og kátir og ákveðnir í að hittast aftur, éta og drekka og vera glaðir.
Það er að vísu viðurkennt að ekkert sem máli skiptir hefur komið út úr fundinum. Rússar halda fast við sín mannréttindabrot og skoðanakúgun og Reagan hefur neitað að láta kúga sig til að hætta við geimvarnaáætlun sína.
Það er rétt hjá flm. líka að það hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með stjórnmálum eða blaðaskrifum, erlendum stjórnmálaskrifum, undanfarið að þessi geimvarnaáætlun Bandaríkjanna, svokallaða, hefur orðið Ráðstjórnarríkjunum og fylgifiskum þeirra hvað mestur þyrnir í augum.
Eins og venjulega tekur Alþb. þetta upp á Alþingi Íslendinga og það er svo sem ekkert nýtt. Og eins og flm. lagði áherslu á segir hann og skrifar „geimvopn“ og „stjörnustríð“ í stað þess að tala um þetta geimvarnafrumkvæði, eins og það er, sem geislavarnaáætlun eða laser-hlíf gegn eldflaugum og kjarnorkuvá. Það væri í raun og veru miklu réttara nafn á því sem hér er um að ræða.
Það er fróðlegt að geta sér þess til hvers vegna Sovétstjórninni er svo geysilega illa við þessa áætlun. Það er löngu ljóst að eldflauga- og kjarnorkubúnaður Sovétmanna er margfalt öflugri en sá sem Vesturveldin hafa yfir að ráða. Það hefur hins vegar orðið fólki í Sovétríkjunum dýrt að halda uppi þessu forskoti í vopnakapphlaupinu. Það er nefnilega jafnkunnugt að lífskjör og aðbúnaður almennings þar í austri er a.m.k. eins langt á eftir því sem gerist vestantjalds og svarar yfirburðum í vopnabúnaði. Hugsandi fólk í Austur-Evrópu gerir sér grein fyrir því að ef ráðamenn þeirra
þurfa nú að leggja ofurkapp á að ná aftur forskoti í þróun og prófun geislavarnatækja gegn eldflaugum verður það á kostnað lífskjara heima fyrir að verulegu leyti. Valdaklíkunni í Sovétríkjunum hefur líklega orðið ljóst líka að þeir eru tæknilega að dragast aftur úr í þessum efnum. Auðvitað eru þeir engir byrjendur í geislavarnatilraunum eða geimvopnasmíði, eins og flm. orðaði það. Þeir hafa í fjölmörg ár reynt og rembst við að þróa og prófa aðferðir til að granda eldflaugum með rafsegulbylgjum margs konar, en þeim kvað lítið hafa orðið ágengt og er þar einkum kennt um vanþróuðum tölvubúnaði og ýmsum hátæknibúnaði. Þeir ráðstjórnarherrarnir hafa líka séð að tæknikapphlaupið gæti orðið þeim óhemju dýrt, og það er nokkuð sem þeir þola varla mikið lengur vegna ástandsins innanlands.
Fyrir rúmri viku eða tíu dögum var þáttur í að mig minnir CBS-sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum þar sem fjórir fyrrverandi utanríkisráðherrar fjölluðu um þetta mál. Ég átti þess kost að fylgjast nokkuð með þessum þætti. Þar voru rifjaðir upp fyrri fundir æðstu manna og hvað þeim fylgdi. Það kom í ljós að fylgja þessara funda var ekki sérstaklega ánægjuleg. Í kjölfar fundar Krústsjoffs og Kennedys komu upp eldflaugar á Kúbu, í kjölfar Carter-Brésnéff- fundanna kom að mig minnir innrásin í Afghanistan og fleira var talið upp í þessum efnum. Það er eins og verið sé að prófa hve mikið má leyfa sér eftir hvern fund.
Ég minntist áðan á laser-geisla og þá laser-tækni sem þetta geimvarnafrumkvæði byggist á. Þetta er stórkostleg ný tækni. Ég hef nýlega átt þess kost að kynnast notkun laser-geisla í allt öðrum tilgangi, til þess að finna hringorma í fiski, og það sýnir hve geysilegri tækni er hægt að ná með þessari aðferð, þessari eðlisfræðilegu aðferð. Þetta er að vísu á allt öðru sviði - annað er í macro-stíl og hitt í micro-stíl, ef menn skilja það. Ég hef tröllatrú á þessari tækni og það er mesta von mín nú um að ef hægt er að koma í veg fyrir að sprengja, sem búin hefur verið til, springi, sé það með þessu.
Ég er nokkurn veginn viss um að Sovétmenn eru ekki eins vantrúaðir á notkun þessarar tækni og ýmsir Vesturlandabúar. Það getur vel verið að þeir hafi séð það í sínum frumtilraunum að þetta gengur. Ég held að flestir sem hér eru inni, hv. alþm., muni hvaða viðbrögð voru við sprengjuflugvélum og loftárásum seinni heimsstyrjaldarinnar og reyndar fyrri líka. Það voru leitarljós og litlar sprengjuflugvélar til að granda sprengjuflugvélum. Á sama hátt má hugsa sér að með þessu móti verði hægt að granda þeim eldflaugum sem flytja kjarnorkusprengjur meginlanda á milli. (Gripið fram í.) Að sjálfsögðu getur það orðið. Mannkynið hefur alltaf fundið einhver ráð til þess að finna upp ný vopn og líka nýjar varnir gegn þeim. Ég hef tröllatrú á því að svo verði enn.
Ég hef ekki miklar áhyggjur af því þó að nokkur hundruð bandarískir vísindamenn vilji ekki vinna fyrir forseta sinn við þessar rannsóknir. Ég veit að tugir þúsunda færustu vísindamanna heims mundu taka hverju tækifæri fegins hendi til þess að vinna við þessar áætlanir. Ég get vitnað í ítalskan þingmann sem sagði nýlega að þátttaka í þessari áætlun væri kærkomið tækifæri til samvinnu evrópskra vísindamanna með bandarískum í þessum rannsóknum og til þess að öðlast fræðslu á þessu sviði. Þetta eru samskipti á þýðingarmesta sviði rannsókna í dag til skoðanaskipta milli heimsálfa. Það er stöðugt verið að reyna að koma því að að Bandaríkjamenn séu með geimvarnafrumkvæði sínu að rjúfa samninginn um bann gegn gagneldflaugum sem Rússar hafa að vísu ekki staðið við. Þetta er þó algjör misskilningur þar sem hér er eingöngu um varnaráætlun að ræða, rannsóknir, en ekki framkvæmdaáætlun.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Shultz, sagði nýlega að geimvarnaáætlunin væri rannsóknaáætlun sem hefði verið búin til og muni halda áfram að verða til þess eins að rannsaka hvað hægt er að gera með þessum hlutum og hún mun ekki brjóta í bága við samninginn um bann gegn gagneldflaugum á einn eða neinn hátt.
Till. sem hér liggur fyrir er í rauninni löngu úrelt. Á þingmannafundi NATO-ríkja í haust, þar sem Ísland er þátttakandi, var þessi till. samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta og sýndi með því enn einu sinni styrk Atlantshafsbandalagsins og samstöðu þegar á þarf að halda.