05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (916)

86. mál, bann gegn geimvopnum

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það er að vísu lítið atriði en ég taldi rétt að farið væri með það á réttan hátt svo hv. þm. Eiður Guðnason heyrði. Flokksbróðir minn Steingrímur Sigfússon óskaði eftir því að jafnaðarmenn úr Alþfl. töluðu hér í umræðunum. Ég sagði hins vegar að það væri alveg nóg að við hinir þrír jafnaðarmennirnir töluðum í umræðunum, ég og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson og Steingrímur Sigfússon.