05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (925)

Afstaða Íslands til banns við kjarnorkuvopnum

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég er hjartanlega sammála hæstv. forseta sameinaðs þings um að ég held að hér sé rétt að farið og er fyllilega farið eftir þingsköpum. Ég held að það séu endurbætur á þingsköpum að opna fyrir umræðu sem þessa.

Ég ætla ekki að fara að vekja hér deilur um utanríkismál í þessum umræðum utan dagskrár, en ég get ekki varist því að sú afstaða sem kom fram hjá hæstv. utanrrh. vekur undrun mína. Ég tel að önnur afstaða hefði verið meir í samræmi við anda þeirrar samþykktar sem Alþingi gerði um utanríkismál á síðasta vori og vil að það komi fram í þessari umræðu. Breytt afstaða Norðmanna ber því vitni að ríkisstjórn Kåre Willochs treystir sér til að standa að samþykkt tillögu Mexíkó og Svíþjóðar og fleiri ríkja. Verður þó held ég ekki Kåre Willoch, né heldur flokksbróðir hans Poul Schlüter í Danmörku, sakaður um þjónkun við heimskommúnisma. Og því skyldum við fara að vera kaþólskari en páfinn? Ég er alveg sammála forsrh. um að samþykkt þessarar tillögu hefði ekki verið nein allsherjarlausn og hún hefði ekki verið trygging á heimsfriði um okkar daga, en samþykkt þessarar tillögu hefði verið nokkurt skref, ekki stórt skref, en þó skref í rétta átt og skref sem ég held að óhætt hefði verið fyrir okkur að taka þátt í að stíga. Ég tel eðlilegt að Ísland hafi samstöðu með öðrum Norðurlandaþjóðum og gæti sóma síns vegna prýðilega greitt atkvæði með tillögu Svíþjóðar.