05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (926)
Afstaða Íslands til banns við kjarnorkuvopnum
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Viðbrögð hæstv. utanrrh. í þessu máli valda vissulega miklum vonbrigðum. Ég ítreka: Hver hefði trúað því að aðeins sex mánuðum eftir samþykkt þáltill. um afvopnunarmál, stefnu Íslendinga í þeim efnum, stæðum við í þeim sporum eitt Norðurlanda að fylgja ekki þeirri tillögu sem hér um ræðir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, tillögu sem Svíþjóð er meðflytjandi að og tillögu sem yfirgnæfandi fjöldi ríkja heims sameinast um. Viðbárur hæstv. utanrrh. um að ekki séu í tillögu Mexíkó, Svíþjóðar og fleiri tekin inn öll þau atriði og fyrirvarar sem lesa megi út úr þáltill. Alþingis á s.l. vori eru fyrirsláttur einn. Það má lengi búa til slíkar girðingar ef maður vill reisa þær.
Hæstv. utanrrh. greindi frá því aðspurður á fundi utanrmn. s.l. mánudag að Ísland hefði greitt atkvæði í nefnd með sama hætti og áður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Hann hafði hins vegar ekki fyrir því að greina nefndinni frá því að Noregur hefði þar breytt um afstöðu og hvaða fyrirvara Noregur hefði gert. Ég spyr hér að gefnu tilefni: Ætlaði hæstv. utanrrh. að leyna Alþingi Íslendinga og utanrmn. þeirri breytingu sem þarna hafði orðið? Sá hann ekki ástæðu til þess að greina forsrh. landsins frá því að Noregur hefði tekið aðra afstöðu en í fyrra, hefði breytt afstöðu sinni, og Ísland stæði eftir eitt í hópi Norðurlanda sem ekki greiddi atkvæði með þessari tillögu?
Ég óskaði eftir því á nefndum fundi að fá niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar, ekki vegna þess að ég vissi um breytta afstöðu Norðmanna heldur vegna þess að ég vildi sjá svart á hvítu hvernig atkvæði hefðu þarna fallið, og nú liggur það fyrir ótvírætt. Í ljósi þess hlýtur Alþingi að taka á þessu máli áður en það gengur til endanlegra lykta á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, væntanlega í næstu viku. Ég trúi ekki öðru en hæstv. utanrrh., að athuguðu máli, og samstarfsflokkur hans í ríkisstjórn, flokkur hæstv. forsrh., stuðli að því að þessi mistök, sem ég vona að verði aðeins mistök, verði leiðrétt. Hér hafa komið stuðningsyfirlýsingar frá talsmanni Framsfl., formanni þingflokks Framsfl., í þessum efnum og það hlýtur að verða okkur hvatning til að taka á þessu máli og tryggja að sá blettur verði þveginn af nafni Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem á hann féll í nefndri atkvæðagreiðslu 20. nóvember.