05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í B-deild Alþingistíðinda. (930)

Afstaða Íslands til banns við kjarnorkuvopnum

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil eindregið taka undir það sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sagði áðan því að ég held að hér sé svo djúpstæður ágreiningur um hvað Alþingi var að samþykkja á s.l. vori að þar þurfi úr að skera. Ég held þess vegna að það væri mjög vel hægt að láta ganga atkvæðagreiðslu á hinu háa Alþingi um hvernig Ísland greiði atkvæði í þessu máli.

Ég vil jafnframt fara þess á leit við hæstv. utanrrh. að hann dreifi á Alþingi Íslendinga þeirri tillögu, svokallaðri Mexíkó-Svíþjóðar-tillögu, sem hér um ræðir. Sannleikurinn er sá að fæstir þm. hafa hana séð og einungis á enskri tungu þeir fáu sem það hafa gert. Ég held að það sé skylda utanrrn. þegar um slíkar tillögur er að ræða að þeim sé dreift á íslenskri tungu því að ekki er hægt að gera ráð fyrir að allir hv. þm. séu læsir á ensku. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé gerlegt að nú á allra næstu dögum og þegar eftir helgina verði þessari tillögu dreift, sem ég hef hér í höndunum á ensku, og þm. gefist kostur á að bera saman innihald tillögunnar sem liggur fyrir þingi Sameinuðu þjóðanna og þeirrar tillögu sem hið háa Alþingi samþykkti á s.l. sumri.

Fari þetta eins og nú horfir sé ég raunar ekki ástæðu til þess að þeir flokkar sem eiga sæti á Alþingi og leggja höfuðáherslu á þessi mál sendi yfirleitt fulltrúa á þing Sameinuðu þjóðanna til að greiða atkvæði þvert gegn vilja þeirra flokka. Ég hef raunar bent á það áður hér í ræðustól að öll störf þeirrar sendinefndar þyki mér með mestu ólíkindum þar sem menn geta séð ef þeir líta í þá bók sem árlega er gefin út um þing Sameinuðu þjóðanna að embættismenn eru þar aðalmenn en alþingismenn varamenn. Hefur mér raunar fundist þeirra erindi oft ærið lítið á þing Sameinuðu þjóðanna.

En ég ítreka beiðni mína, hæstv. utanrrh., um að þessu plaggi verði dreift hér þegar eftir helgina og vil eindregið fara fram á að hér verði skorið úr um hvort þessi tillaga þeirra Svía og Mexíkana og allra þeirra þjóða sem hana styðja stangast í einhverju á við þá samþykkt sem var gerð á hinu háa Alþingi og þá hvernig.