05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (931)

Afstaða Íslands til banns við kjarnorkuvopnum

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Út af ummælum hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur áðan vil ég taka fram að ég er henni mjög sammála þar sem ég skildi hennar mál svo að mikilvægt sé að forustumenn stórveldanna eru farnir að tala saman. Ég er sömuleiðis sammála því að við eigum að beita þrýstingi eins og við getum til þess að árangur verði af þeim viðræðum og horfið af fyrri óheillabraut sem við erum á. Það er hins vegar mikill misskilningur hjá hv. þm. að ég sé ekki hlynntur því sem hugsanlegu skrefi að banna tilraunir með kjarnorkuvopn eða hlynntur frystingu.

Ég vil geta þess að á fundi með forseta Bandaríkjanna í Brüssel 21. nóvember s.l. gat ég þess sérstaklega í orðum sem ég sagði þar að íslenska þjóðin legði sameinuð áherslu á að horfið væri af þessari braut og til afvopnunar. Ég spurði þá sérstaklega að því hvort ekki væri hugsanlegt sem eitt fyrsta skrefið að banna tilraunir með kjarnorkuvopn, þ.e. samþykkja frystingu undir öruggu eftirliti. Forseti Bandaríkjanna svaraði þeirri spurningu þannig að hann teldi stórum meiri líkur til þess að það gæti orðið nú en fyrir fund þeirra forustumannanna.

Ég tel að m.a. með þessu móti þá séum við að kynna okkar viðhorf og beita þrýstingi þar sem hann getur haft kannske nokkur og jafnvel töluverð áhrif.