05.12.1985
Sameinað þing: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (934)

Afstaða Íslands til banns við kjarnorkuvopnum

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég upplýsa að utanrmn. hefur haft aðgang að, ekki bara tillögu Mexíkó og Svíþjóðar og fleiri ríkja heldur 74 tillögum sem liggja fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og eru þar ræddar, um afvopnun, og Íslendingar eru meðflm. á sumum þessara tillagna. Það er allt annað en svo að þessar tillögur séu allar sambærilegar. Þær skarast á ýmsa vegu. Þetta er sumt mjög flókið og torlesið. Mappa með öllum þessum tillögum liggur úti í herbergi utanrmn. og væri auðvitað hægt að láta fjölfalda þær allar saman, ekki bara þessa einu. Ég skal alveg játa að ég hef ekki gaumgæfilega stúderað allar þessar tillögur, enda held ég að það væri ærið verk að ætla sér að setja sig niður í allan þankagang þeirra hverrar um sig. En mér finnst þessi Mexíkó-Svíþjóðar- tillaga ekki vera neitt sérstök, ekki vera meira þess virði að greiða atkvæði með henni en mörgum öðrum.

Ég hef heldur ekki skilið hvernig hægt er að misskilja þá málsgrein sem við samþykktum hér í fyrravor einróma og hæstv. utanrrh. las upp. Þar er talað um gagnkvæmni, eftirlit o.s.frv. Það er rauði þráðurinn í þessari tillögu. Og þegar mér var falið að halda framsögu fyrir hönd nefndarinnar lagði ég að sjálfsögðu áherslu á að allir íslenskir stjórnmálaflokkar litu raunsætt á málið, þar á meðal að það þyrfti að vera eftirlit og þyrfti að vera gagnkvæmni. Að öðrum kosti næðist enginn árangur.

En ég vildi aðeins ítreka að þessar tillögur allar eru í herbergi utanrmn. og verða þar og menn geta þar hver og einn gengið að þeim og ljósritað það sem þeir vilja. Tillaga Mexíkó og Svíþjóðar er í mínum höndum og ef menn vilja get ég hlutast til um að hún verði fjölfölduð núna strax, en á ensku er hún að vísu á plagginu sem ég held á.

Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég held að ályktunin sem við gerðum hér samhljóða 23. maí á þessu ári sé það merk að við eigum við að halda okkur að henni og þá verða auðvitað stjórnvöld að gera það upp við sig hvort tillaga Mexíkó er meira í þá átt en þær tillögur sem við sjálfir erum meðflm. að, en það tel ég ekki vera.