09.12.1985
Efri deild: 23. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1202 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

91. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Frsm. meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur haft þetta mál til meðferðar í nokkurn tíma. Það ber að viðurkenna að málið reyndist nokkuð vandmeðfarið í nefndinni af ýmsum ástæðum. Eins og hv. alþm. vita er ekki svo langt síðan umræddur sjúkdómur sem fyrirhugað er að fella undir lögin um varnir gegn kynsjúkdómum, þ.e. ónæmistæring, kom upp. Ég ætla ekki að fara að tíunda í smáatriðum þær aðgerðir sem þegar eru hafnar hér á landi. Frá því hefur þegar verið greint í þessari hv. deild og raunar miklu víðar, m.a. í fjölmiðlum.

Það fór svo að nefndin varð ekki einhuga um afgreiðslu þessa máls. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt en með breytingum þó, sem ábendingar komu um til nefndarinnar, en minni hlutinn skilar séráliti. Allmargir aðilar komu til viðræðna við nefndina um þetta mál: Frá landlæknisembættinu Ólafur Ólafsson landlæknir og Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir, frá heilbrrn. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri. Helgi Valdimarsson prófessor, sérfræðingur í ónæmisfræði sem jafnframt stýrir nefnd sem sett hefur verið á laggirnar á vegum Landspítalans og Borgarspítalans og hefur með varnir gegn ónæmistæringu að gera. Haraldur Briem, sem situr í sömu nefnd, kom einnig til viðræðna við nefndina og Guðni Baldursson. Samstarfsnefnd Landspítalans og Borgarspítalans sem hefur haft með þessi mál að gera, eins og ég greindi frá, sendi jafnframt umsögn um þetta frv., annars vegar nefndin sem heild að einum aðila undanskildum, sem síðar sendi sérálit ásamt öðrum sem hafði fylgt meirihlutaáliti nefndarinnar.

Ég vil þessu næst víkja aðeins að þeim viðhorfum sem fram komu af hálfu samstarfsnefndarinnar. Segja má að inntak umsagnar hennar um þetta mál hafi verið á þá lund að eindregið er varað við því að ónæmistæring verði sett undir umrædd lög án þess að þeim verði breytt að öðru leyti, þ.e. þeir lögðu áherslu á að skráningarákvæðum laga um varnir gegn kynsjúkdómum yrði breytt og sömuleiðis að refsiákvæðum laganna yrði breytt. Samstarfsnefndin telur að ef ónæmistæring verði felld undir þessi lög geti það hugsanlega fælt smitaða einstaklinga frá því að leita læknis. Ég tek þó fram að samstarfsnefndin er einhuga um að ónæmistæring verði flokkuð til kynsjúkdóma og um það út af fyrir sig stendur engin deila, um það eru ekki skiptar skoðanir. Samstarfsnefndin leggur áherslu á að þær skipulögðu aðgerðir sem þegar eru hafnar varðandi ónæmistæringu verði reyndar enn frekar án þess að til komi lagasetning. Þeir benda á að það sé svo skammur tími liðinn síðan umræddar aðgerðir hófust að nægileg reynsla sé ekki fengin enn þá. Þetta varðar almennt þá umsögn sem samstarfsnefnd Borgarspítalans og Landspítalans gaf sameiginlega með þeirri undantekningu sem ég gat um áðan. Ég endurtek að þeir álíta að ekki sé heppilegt á þessu stigi - ég endurtek: á þessu stigi - að fella viðkomandi sjúkdóm undir umrædd lög.

Sú umsögn sem barst heilbr.- og trn., þ.e. sérálit Haralds Briem og Sigurðar Guðmundssonar, hnígur raunar mjög í sömu átt. Þó verður að segja að meiri munur sé en aðeins blæbrigðamunur á þessum umsögnum. Þá er ég með í huga sérálit nefndra aðila. Þar er sem sagt lögð allrík áhersla á það að skráningarákvæðum og refsiákvæðum laga um varnir gegn kynsjúkdómum verði breytt. Hins vegar hafa þeir ekki uppi varnaðarorð um það að á þessu stigi verði viðkomandi sjúkdómur felldur undir lög um varnir gegn kynsjúkdómum.

Það er, eins og fram kemur, tillaga meiri hluta nefndarinnar að þetta mál nái fram að ganga nú. Það urðu, eins og ég gat um áðan, allmiklar og nokkuð langar umræður um þetta í nefndinni og eftir sat jú fyrst og fremst þetta, hvort breyta skyldi ákvæðum um skráningu og refsiákvæðum laganna, laga um varnir gegn kynsjúkdómum.

Ég vil geta þess að í þeim umræðum komu upp hugmyndir um það að hafa sérstaka skráningu, eða sérákvæði um skráningu, vegna þessa sjúkdóms. Þá hefðu orðið í lögunum tvenns konar skráningarreglur. Ég held þó að jafnvel allir nefndarmenn hafi vísað þessari hugmynd á bug að lokum. Það skal tekið fram að vegna þeirra skráningarákvæða sem eru í lögum um varnir gegn kynsjúkdómum hafa engin vandkvæði komið fram eftir því sem okkur er tjáð í heilbr.- og trn. Almennt séð er rétt að taka fram að skráning er ekki síður öryggisatriði fyrir heilbrigðiskerfið, m.a. með hliðsjón af hagsmunum hinna heilbrigðu. Sumir vilja enn fremur benda á að allnokkur leyndarvernd sé fólgin í því að fleiri sjúkdómar falla undir sams konar skráningarákvæði.

Varðandi refsiákvæði vil ég taka það fram að þau eru almenn líkt og í öðrum lögum. Umræddum refsiákvæðum hefur lítið ef nokkuð verið beitt og ekki er óeðlilegt að menn velti því fyrir sér hvort ástæða sé til að hafa mildari refsiákvæði eða jafnvel engin refsiákvæði þegar um hættumeiri sjúkdóm er að ræða en nú þegar eru nefndir í umræddum lögum.

En hvaða atriði eru það sem meiri hluti heilbr.- og trn. m.a. færir fram sem rök fyrir því að breyta ekki lögunum að öðru leyti en lagt hefur verið til? Það hefur ekkert farið á milli mála að heilbrigðisyfirvöld leggja mjög mikla áherslu á þetta mál í heild og benda á, eins og ég gerði raunar áðan, að núverandi skráningarákvæði hafa ekki orðið til vandkvæða. Í heild má segja að heilbrigðisyfirvöld telji sig þurfa þann lagagrunn sem hér er lagður til svo að þau geti fengist við þessi mál, að þessi mál verði ekki öll í lausu lofti.

Núverandi skráningarákvæði í lögunum eru þess eðlis að þar er að sjálfsögðu gert ráð fyrir nafnleynd. Það er mjög mikilvægt að dómi heilbrigðisyfirvalda að skráning sé óyggjandi trygg hjá landlæknisembættinu. Lögin kveða enn fremur á um sérfræðilega læknishjálp og kostnað vegna hennar. Það eru í lögunum ákvæði sem beita má gegn sýktum einstaklingum m.a. til þess að þeir leiti læknis. Almennt er talið að núverandi kynsjúkdómalög hafi dugað nokkuð vel.

Meiri hluti nefndarinnar flytur brtt. við frv. Þar er fyrst til að nefna að samkvæmt ábendingum gerir nefndin tillögu um skýrari uppröðun þeirra sjúkdóma og sýkinga sem getið er í lögum um varnir gegn kynsjúkdómum. Þar er einkum og sér í lagi vikið að chlamydiae-sýkingum, þ.e. að allar sjúkdómsmyndir en ekki aðeins þvagrásarbólga séu greinilega upp taldar í þessu sambandi.

Um þetta er ástæðulaust að hafa fleiri orð, en nefndinni hefur borist nýtt bréf frá samstarfsnefnd Landspítalans og Borgarspítalans um varnir gegn kynsjúkdómum. Í því bréfi eru áréttuð þau viðhorf sem ævinlega hafa komið fram frá þessum aðilum varðandi skráningarákvæði og hegningarákvæði laganna. Þar er lagt til af þeirra hálfu varðandi hegningarákvæðin að þau verði bókstaflega felld niður. Nú bið ég menn að athuga að undir þessi lög flokkast fleiri sjúkdómar og eru menn þá að leggja hér til að um þá sjúkdóma gildi ekki hegningarákvæði. Og þeir ítreka viðhorf sín og tillögur varðandi skráningarákvæðin. Ég hef áður vikið að þeim og ætla ekki að gera það frekar.

Það atriði, sem samstarfsnefndin bendir á í sínu bréfi, sem stílað er 9.12.1985, og er fyrst af áherslupunktum umræddrar nefndar í bréfinu, varðar heitið á þessum sjúkdómi. Ég vil, með leyfi forseta, lesa það sem þar stendur:

„Miðað verði í 1. gr. laganna við smitun á HTLV3-veirunni fremur en alnæmi sem einungis á við þann hluta smitbera sem fengið hafa verulega ónæmisbilun af völdum veirunnar. Í stað alnæmis í fyrirliggjandi frv. þarf því að koma „smitun af HTLV3-veiru“.“

Heilbr.- og trn. skaut á fundi núna rétt fyrir þingfund og ræddi þetta mál og meiri hluti nefndarinnar leggur til að farið verði að þessum ráðleggingum samstarfsnefndarinnar, þ.e. að í stað þess heitis sem er í frv., „alnæmi“, komi „smitun af HTLV3-veiru“. Þessarar brtt. er að vísu ekki getið í dagskrá en þetta er brtt. við brtt. og mun hún þá væntanlega koma til atkvæða við þessa 2. umr. málsins.

Ég tek fram að um þetta atriði hefur verið haft samband og samráð við landlækni.

Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri. Ég taldi mér skylt að gera í grófustu dráttum grein fyrir því hvernig umfjöllun hefði átt sér stað í nefndinni. Segja má að mikill hluti umræðunnar hafi farið í það að menn velta fyrir sér hvort þessi lagasetning hafi hugsanlega í för með sér að - ekki síst áhættuhópar - þeir verði áfram „í felum“, eins og það er kallað, en þá hlýtur maður að leiða hugann að því af hverju áhættuhópar, sem svo eru kallaðir, eru í felum. Eru það ekki fyrst og fremst fordómar sem ríkja úti í samfélaginu sem valda því? Það hefur margsinnis verið að því vikið að það væri fremur ástæða til þess en hitt að yfir öllu þessu hvíldi meiri leyndarhjúpur. Einhvern veginn held ég að fordómar verði síður kveðnir niður með því að sveipa allt og allt, eftir atvikum stór eða smá vandamál í samfélaginu, einhverjum leyndarhjúp.

Einstaklingar og þjóðin sem heild kemst ekki hjá því að mæta þeim vandamálum sem óhjákvæmileg eru og menn verða að taka saman höndum um að leysa þau. Ég held að menn nái betri árangri í viðureign við þau ef þeir horfa hispurslaust framan í vandamálin en sveipa þau ekki of miklum og þykkum leyndarhjúp.