10.12.1985
Sameinað þing: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (966)

Um þingsköp

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég vek athygli á því að á þessum fundi hefur verið dreift þremur till. til þál. sem varða afstöðu Íslands til frystingar kjarnorkuvopna eða stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar. Þessar tillögur varða allar mál sem er á dagskrá á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á þessum dögum og líkur eru á því að þar gangi atkvæði um tillögu sem fram er borin af Svíþjóð, Mexíkó og fleiri ríkjum um þetta efni. Sú tillaga varð tilefni umræðna utan dagskrár í síðustu viku. Ein af nefndum þáltill. snertir beinlínis þessa atkvæðagreiðslu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Það eru tilmæli mín til hæstv. forseta að hann stuðli að því í samvinnu við þingflokka að mál þessi og sérstaklega till. á þskj. 225 komi til umræðu hér í sameinuðu þingi áður en atkvæði ganga á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem gæti orðið fimmtudaginn 12. des, n.k. Mér er ljóst að tími er naumur til stefnu til þinglegrar meðferðar á þessum málum, en ég trúi ekki öðru en það sé vilji allra þingflokka og hæstv. ríkisstj. að þingviljinn liggi fyrir í þessu efni áður en atkvæði falla á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ég treysti því að hæstv. forseti beiti sér fyrir því að þessi mál fái umræðu hér í Sþ. og stefnt verði að afgreiðslu þeirra áður en til umræddrar atkvæðagreiðslu kemur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.