10.12.1985
Sameinað þing: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (970)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil aðeins að það komi hér skýrt fram að það er ekki verið að leggjast gegn einu eða neinu af hálfu Alþfl. Það kom fram beiðni s.l. föstudag um útvarpsumræðu um þetta mál og þá hafði ekki borist beiðni frá Ríkisútvarpinu um að útvarpa þessum umræðum. Ég tel það eðlilegt að þegar þingflokkar óska eftir útvarpsumræðum verði þeirri umræðu útvarpað, en Ríkisútvarpið hafði farið fram á að útvarpa þessari umræðu, sem á að eiga sér stað hér nú, slitrótt, þ.e. fyrst í tvo klukkutíma og síðan náðarsamlegast í 40 mínútur. Ég tel miklu betra að þjóðin fái tækifæri til að hlusta á heila umræðu um þetta mál þar sem hver flokkur hefur ákveðinn tíma og því mótmæli ég því sem hv. þm. sagði hér áðan um að Alþfl. hefði með einhverjum hætti lagst gegn því að þessari umræðu yrði útvarpað. Henni verður útvarpað, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson. Það væri svo kannske athugunarefni út af fyrir sig hvort þær ástæður sem hv. þm. nefndi fyrir frestun þessarar umræðu eru einu ástæðurnar sem liggja þar að baki. Það gæti vel verið, ef grannt væri skoðað, að það kæmi eitthvað annað í ljós.