10.12.1985
Sameinað þing: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (996)
Viðskipti Hafskips og Útvegsbankans
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Það var að mörgu leyti gaman að hlusta á nýkjörinn formann BJ, hv. 4. landsk. þm., gefa mönnum góð ráð um það hvernig á að reka fyrirtæki og hvernig á ekki að reka fyrirtæki og enda sína ræðu með því að tala með lítilsvirðingu um „fyrirgreiðslureddara“. En ég er nú einn af þessum „fyrirgreiðslureddurum“ og hef alltaf verið það og verð það. Ég gaf kost á mér í stjórnmál, fyrst í sveitarstjórnarmál, til þess að geta veitt þessu fólki, sem ég hafði búið með og lifað með, fátæka fólkinu í Reykjavík og annars staðar, eins mikla hjálp og aðstoð og ég mögulega gat í gegnum það opinbera. (Gripið fram í: Þeir verða að borga Hafskipsskatt líka, er það ekki?) Það er annað mál, við skulum koma að því seinna.
Hv. þm. endaði sína ræðu með því að segja: „Verið allir eins og ég og ekki öðruvísi, ekki eins og allir hinir og alls ekki eins og þessi kjáni sem hjálpaði fátæku konunni í kaffivagni. Verið eins og ég, takið ekki á ykkur neina ábyrgð. Í guðanna bænum vinnið ekkert sjálfstætt, það getur verið stórhættulegt. Komið heldur og vinnið hjá því opinbera, t.d. hjá Háskóla Íslands eins og ég, þar sem við getum farið fram úr áætlunum í peningamálum. Ríkið borgar, það verður að koma aukafjárveiting hvernig sem við högum okkur, við þurfum ekkert að vera ábyrgir fyrir neinu. En farið ekki“ (Gripið fram í.) Fyrirgefðu, fyrirgefðu hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, ég mundi ekki á þessu augnabliki að þú vinnur líka hjá Háskóla Íslands. (ÓRG: Ég var bara að segja að Hafskip fór líka fram úr áætlun og ríkið á líka að borga það.) (Forseti: Hæstv. iðnrh. hefur orðið, ég vil beina því til hv. þm.) Þetta var mjög vel sagt hjá Ólafi. Ég veit ekki hvort það þýðir nokkuð að minna á að maðurinn í ræðustólnum hefur orðið en það kostar ekkert að reyna.
Hv. þm. Guðmundur Einarsson segir að stjórnmálamönnum sé ekki treystandi til að reka banka og að ekki geti farið saman að alþm., formaður Hafskips og formaður bankaráðs geti verið einn og sami maðurinn. Ég þurfti að svara einum af hans spurningum í sjónvarpi nýlega þegar hann sagði: „Menn mega ekki eiga neinna hagsmuna að gæta ef þeir eiga að vera í bönkum.“ Ég get rakið í dag og aftur í tímann athafnamenn sem einmitt hafa verið beðnir um að fara og reka ríkisfyrirtæki og þá sérstaklega peningastofnanir því að engum er betur treystandi til að gera það en mönnum sem hafa þá reynslu sem til þarf úr viðskiptalífinu. Enda kæmi mér ekki á óvart þó að þessir ágætu menn, sem hér hafa talað og aldrei viljað taka neina áhættu sjálfir í rekstri þrátt fyrir allan þann mikla tíma sem þeir hafa lagt í að læra að bjarga sér sjálfir, gætu það ekki. Ég held þeir kæmust ekkert áfram á hinum almenna vinnumarkaði. Ég held að það sé alveg augljóst að það er rétt, sem hefur komið fram, að þegar menn eru komnir í þetta langa háskólanám búa þeir sig yfirleitt undir opinber störf.
En er það virkilega meining þeirra, er það virkilega sannfæring þeirra að athafnamönnum sé ekki treystandi til að koma nálægt peningastofnunum, fyrirtækjum eða opinberum stofnunum almennt? (Gripið fram í: Alls ekki, þú átt bara að hafa reikninginn þinn annars staðar.) Hvar á að hafa reikning annars staðar? Eru ekki ríkisbankarnir aðalstofnanirnar, eru það ekki aðalpeningastofnanirnar? Við tókum þátt í því nokkrir sem erum hérna inni, ekki eldri en við erum, að stofna fyrstu einkabankana hérna. Að vísu var Íslandsbanki einkabanki á sínum tíma, en það er nú ekki lengra síðan. Ég held að Hafskip sé eldra en elsti einkabanki sem nú er starfandi, það munar ekki miklu á aldri. Hvert eiga menn að fara? Það er ekkert annað en ríkisforsjá, það er ekki hægt að hafa reikning annars staðar.
En það er eitt sem ég vil að menn skilji, að það er rangt hjá hv. þm. Guðmundi Einarssyni að ekki séu í gildi lög sem banna bankaráðsmönnum að taka ákvarðanir um útlán á peningum í peningamálastofnunum. Það er akkúrat öfugt. Því eru gerð mikil og skýr skil í lögum um bankana hvert hlutverk bankaráðsmanna er og hvert hlutverk bankastjóranna er. Það er alveg afmarkað - BJ er ekki að finna upp hjólið í dag, ekki heldur eldinn. Þetta er búið að vera í lögum um bankana svo lengi sem þeir hafa verið reknir svona. Það er ekki hægt fyrir bankaráð að taka ákvörðun um útlán. Það er ekki hægt. Það er ekki hægt fyrir bankaráð að taka neinar ákvarðanir um rekstur bankans í peningamálum nema bankastjórnin sjálf leggi málin fyrir bankaráðið. Öðruvísi er það ekki hægt. En bankastjórarnir geta lagt mál fyrir bankastjórnina. Það var ekki gert í eitt einasta skipti, eins og kom fram hjá hæstv. forsrh. í dag, þann tíma sem ég var bankaráðsformaður í Útvegsbankanum hvað varðar Hafskip. Og ég vissi það nú ekki fyrr en seinni partinn í dag þegar ég kom hingað að um það er getið í Morgunblaðinu í morgun að hann hafi talað við þá bankastjóra sem voru í Útvegsbankanum þann tíma sem ég var bankaráðsformaður og þeir hafi allir staðfest það við hann að ég hafi aldrei nálægt útlánum komið né reynt að hafa áhrif á þá um útlán.
Menn verða að vita um hvað þeir eru að tala. Það er ekki hægt að segja: Bandalag jafnaðarmanna er svo ungur flokkur að það er eðlilegt að þeir sem hann fylla séu ekki búnir að slíta barnsskónum enn þá - því að mennirnir sem í honum eru eru nógu gamlir og eiga að vita meira og betur þegar þeir koma út úr háskóla, ég tala nú ekki um þegar þeir eru farnir að kenna í háskóla.
Það getur vel verið rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, að Útvegsbanki Íslands skuldi orðið um 1000 millj. Ég bara veit það ekki. En eitt veit ég. Áður en ég kom í Útvegsbankann var þar við mjög mikil vandamál að etja. Það veit hv. fyrrv. formaður þingflokks Alþb. og þáv. stjórnarliði - svo ég tali nú ekki um fyrrv. hæstv. fjmrh. Ekki gekk svo lítið á þegar ég var að sækja á hann með öðrum hans flokksmönnum, sem reyndust mér hvað bestir félagar í því máli sem þá var efst á baugi, að styrkja bankann til þess að hægt væri að koma honum aftur á réttan kjöl, eins og það var þá orðað. Og eftir að bæði Alþýðubandalagsmenn og þáv. hæstv. forsrh. höfðu beðið mig nokkrum sinnum um að taka að mér að stýra bankaráði Útvegsbankans, þá gerði ég það að fengnu samþykki þingflokks Sjálfstfl.
Þegar ég fór frá bankanum þá var bankinn sterkari að því leytinu til að hann hafði færri stöðum að þjóna þar sem hann hafði ekki möguleika á því að fá sparifé fólksins í veltu, því að eitt af því sem hvíldi á Útvegsbankanum var að hann fjármagnaði ýmsa starfsemi, atvinnustarfsemi og þá aðallega sjávarútveg, hingað og þangað um landið þar sem hann hafði ekki útibú, en aðrir bankar höfðu útibú. Á þeim tíma voru 53 eða 56%, ég man ekki hvort það var, af ráðstöfunarfé bankans í sjávarútvegi. Úr þessu var mjög mikið dregið. Það voru a.m.k. 7 eða 8 staðir á landinu sem voru færðir yfir í aðra banka. Það var létt á Útvegsbankanum.
Mér til mikillar ánægju þá kom það fram hjá hæstv. viðskrh. í dag, að nú eru um 43%, ef ég man rétt, af innlánsfé bankans í sjávarútvegi. Munurinn þarna, á því að festa peningana á þeim stöðum þar sem bankinn hafði ekki tækifæri til innlána og því sem hann gerði meðan ég var þar og virðist gera enn þann dag í dag, sá ávinningur fór til þess að veita aðhlynningu litla manninum, eins og ég kallaði hann, manninum á götunni og þeim sem voru að koma af sjúkrahúsum og þurftu aðstoðar við. Þeir gátu leitað til Útvegsbankans þá og fengið hjálp til bráðabirgða. Við þetta jukust afgreiðslur bankans svo hundruðum, ef ekki þúsundum skipti. Það kom mér því ekkert á óvart þegar hæstv. viðskrh. upplýsti það í dag að bankinn hefði verið með 58% innlánsaukningu þegar aðrir voru með þó nokkuð miklu minna - áður en hann var auglýstur sem vandræðafyrirtæki nú fyrir nokkrum dögum.
Ég held að menn verði að gera sér grein fyrir því að bankaráðsmönnum og bankaráðsformönnum eru mjög mikil takmörk sett í áhrifum á hina daglegu starfsemi bankans. Því þau eru engin. Hitt er annað mál að lögum samkvæmt hvílir eftirlitsskylda á bankaráðsformönnum og bankaráðum með eignum og ráðstöfun á eignum bankans. Og ég vil undirstrika það að bankastjórar Útvegsbankans hafa staðfest það - og ég held að engir aðrir séu færari um það - hafa staðfest að ég hef ekki komið nálægt útlánum bankans.
Og það gekk svo langt í umræðunni í dag hjá, ég held, hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni - ég bið hann fyrir fram velvirðingar ef ég hef það eftir einhverjum öðrum - það gekk svo langt að jafnvel Byggung, sem ég veit ekki annað en að sé nokkuð gott fyrirtæki, var dregið inn í myndina til að gera hana, að mér skildist, enn þá tortryggilegri. En hvað kemur Byggung þessu máli við? Af hverju skyldi Byggung hafa verið dregin þarna inn í? Og að Byggung flutti úr einum banka í annan og það í Útvegsbankann, af hverju? Getur það verið - nei, það getur ekki verið, og þó - getur það verið vegna þess að tengdasonur minn rak Byggung? Það skyldi þó aldrei vera. Það skyldi þó aldrei vera. En það hvarflar ekki að mér að menn leggist það lágt þó þeir séu komnir ansi lágt.
Ýmislegt hefur verið skrifað um þetta mál og þau skrif hafa ekki öll verið skemmtileg. Það hafa verið hafðar uppi fullyrðingar, sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur tekið undir, og ég hef tilgreint þau ummæli hans í bréfi til saksóknara ríkisins sem mun láta kanna réttmæti þeirra. Og ég vona að hv. þm. verði þá maður til þess að afsala sér þinghelgi eins og ég er reiðubúinn að gera til að láta dómstóla dæma um réttmæti orða okkar og athafna. Því að ég ætla mér ekki að liggja undir því að hafa komið til baka til landsins sem þekktur íþróttamaður, virtur, og einn fyrsti íþróttamaður sem fær „dekorasjón“ frá þeim löndum sem hann kveður og koma hingað i pólitík til þess að láta ómerka blaðamenn og þingmenn eyðileggja gott mannorð þegar ég er kominn á sjötugsaldur. Það verður ekki. En mér er sagt að enn séu í blöðum á Norðurlöndum greinar sem eru mannorðsskemmandi, enda mannorðsmorðingjar að verki. Með leyfi hæstv. forseta gríp ég niður í slíka grein sem er slúður um margt annað. Þar segir að ákveðinn maður, sem hér er nefndur, hafi átt að vera flaggskip frjálshyggjunnar í Sjálfstfl.
„Albert Guðmundsson frjálshyggjuráðherra dældi peningum í óskadrengina, einkum gegnum ríkisbankann Útvegsbankann, enda sat hann sjálfur bæði sem stjórnarformaður í Hafskipi og formaður bankaráðs Útvegsbankans. Nú þegar strákarnir eru búnir að kafsigla óskafyrirtæki frjálshyggjunnar og Albert kominn á fremsta hlunn með að velta Útvegsbankanum kippa allir í Sjálfstfl. að sér höndum og segja: Ekki ég. Víst er að Hafskipsmálið mun fá miklar afleiðingar innan flokksins. Málið mun sennilega verða pólitísk jarðarför Alberts Guðmundssonar en um leið banabiti frjálshyggjunnar sem vaðið hefur uppi í Sjálfstfl.“
Ég kæri mig ekki um að lesa frekar og lýk þessum upplestri.
Enn fremur er ég með slúðurgrein úr erlendu blaði, sem ég fékk frá hv. þm., með fréttum af mér sem þýðir að sjálfsögðu ekkert annað en málaferli. Hvað á að ganga langt? Hvað á að ganga langt þegar búið er að auglýsa í blöðunum jarðarför Alberts Guðmundssonar vegna þess að hann hefur verið staðinn að því að ausa fé úr þeim sjóðum sem honum var treyst til að gæta?
Staða Hafskips var slæm þegar ég kom að fyrirtækinu. Hún var búin að vera það í langan tíma. Sá bankastjóri sem ég hef komist að að fyrst átti við vandamál Hafskips að glíma var Finnbogi Rútur, eftir því sem mér er sagt í Útvegsbankanum. Það vandamál er ekki leyst fyrr en nú með uppgjöri á fyrirtækinu. Og allir bankastjórar síðan hafa glímt við þetta vandamál. Það er löngu áður en ég kem í bankann. En staða fyrirtækisins í þau ár sem hann lifði var aldrei betri en það ár sem ég fór frá því.
En hvers vegna er ég þá dreginn inn í þessa mynd nú ef fyrirtæki sem ég tek við stendur betur þegar ég fer frá því? Á sama tíma er ég bankaráðsformaður banka sem stendur miklu betur þegar ég fer frá honum en hann stóð þegar ég kom að honum. Það eru bráðum þrjú ár síðan ég fór frá báðum þessum fyrirtækjum. Hvers vegna er ég þá dreginn inn í þessa mynd núna?
Það hefur komið hér fram að vandamál Hafskips stafa fyrst og fremst af fyrirtækjum og starfsemi sem ekki var til í fyrirtækinu þegar ég var þar. Erlendar skrifstofur á allt öðrum nöfnum en á nafni Hafskips voru ekki til þegar ég var þar. Siglingar á milli heimsálfa, Ameríku-Evrópu, Evrópu-Ameríku, voru ekki til þegar ég var þar. Þeim starfsfélögum sem ég horfi hér á hef ég borið virðingu fyrir. Ég hef treyst ykkur og engum ykkar hef ég brugðist. Flest ykkar hafa leitað til mín bæði sem einstaklings og sem ráðherra. Á ég að trúa því að á meðal ykkar leynist sá hugur til mín að þið viljið pólitískt knésetja mig vegna þess að þið haldið að þar með getið þið komið bletti á Sjálfstfl. sem gæti orðið ykkur til framdráttar í næstu kosningum? Á ég að trúa því? Innra með mér segi ég já. Ykkur er fjandans sama um einstaklinginn sem hefur reynst ykkur vel ef það getur orðið ykkur tímabundið til framdráttar. Þetta er ljótt!
Ég hef nú ákveðið, eins og alþjóð veit, að biðja þann sem fer með mestu glæpamál þjóðarinnar að rannsaka minn feril og þá sérstaklega það sem snertir Hafskipsmálið og mín afskipti af því. Vonandi verðið þið ánægð með það. Ég er ekkert ánægður með að þurfa á sjötugsaldri að standa frammi fyrir þeirri staðreynd að mér er gert á Íslandi, á Íslandi af öllum löndum, sem aldrei hefði getað komið fyrir, mér datt ekki í hug, þó það hefði einu sinni komið fyrir í Frakklandi, að það gæti komið fyrir aftur, að sanna sakleysi mitt. En hver er svo ákæran? Ég veit það ekki sjálfur. Ég veit bara að hún er að ég hafi brugðist þeim skyldustörfum sem mér var trúað fyrir af ykkur félögum mínum á Alþingi.
Það er hart. Og það er ekki mín vegna. Það er langt frá því að það sé mín vegna að það hryggir mig að þurfa að sanna sakleysi mitt. Það er af allt öðrum ástæðum. Ef mitt líf, ef mitt lífshlaup, ef ég, persónan Albert Guðmundsson, ekki stend undir og stend af mér allar árásir á ég ekki annað skilið. En það er landið og þjóðin. Hvert stefnir hún ef einstaklingur kominn þó á sjötugsaldur, búinn að koma víða við, þarf allt í einu af ókunnum ástæðum að sanna sakleysi sitt? Ef þetta ekki skilur eitthvað eftir hjá hv. þm. til að hugsa um veit ég ekki hvernig innrætið er. Ef þetta er það sem koma skal, ef þetta er nýi tíminn skulum við saman kvíða framtíð þessarar þjóðar.
Ég ætta ekki að tína upp ástæður fyrir vandamálum Hafskips. Þau eru öllum ljós. Þeir tapa tekjum, gera tilraun til að fá þær á annan hátt og hún mistekst. Síðan koma atvik fyrir sem ég hefði ekki viljað glíma við vegna þess að ég hefði ekki ráðið við þau frekar en félagar mínir sem urðu eftir í fyrirtækinu þegar ég fór þaðan.
Eitt vil ég segja. Hér hefur komið fram að ég hafi sagt það ósatt að lögfræðingur bankans færi mjög reglulega í heimsóknir til Hafskips á skrifstofuna. Alltaf er hægt að snúa út úr. Það er rétt að lögfræðingur bankans fór ekki reglulega á skrifstofu Hafskips til að telja peningana sem þeir áttu eða til þess að segja þeim hvernig þeir áttu að stjórna, en hann fór reglulega til þess að fylgjast með. Bankastjórinn svaraði spurningu sem var í allt aðra átt. Hún var um hlutverk lögfræðingsins á staðnum. Ég get upplýst það, vegna þess að ég hringdi og talaði við lögfræðinginn sjálfan í dag, að hann viðurkenndi að hann hefði verið beðinn um að fara þangað nokkuð reglulega eftir að ákveðinn bankastjóri lést, en sá bankastjóri hafði haft mest með Hafskip að gera. Þessu starfi gegndi hann frá því að sá bankastjóri lést og þangað til ég fór úr bankanum. Hann var ekki starfsmaður Hafskips. Hann gerði ekki áætlanir fyrir þá. En hann fór til að fylgjast með.
Ég skrifaði orðrétt eftir honum sjálfum og ég vil taka fram að mótmæli bankastjórans voru frekar bundin við hlutverkið sem hann átti að hafa gegnt og komið hefur fram hjá hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni. Ég skrifaði eftir honum að það er rétt að hann tók að sér að hafa reglulegt samband við Hafskip við andlát þess bankastjóra áður en ég kom til starfa og hélst það eftir að ég fór frá bankanum. Nú veit ég ekki hvað lengi, spurði ekki um það.
Hvað aðrar fullyrðingar snertir, Reykvísk endurtrygging, skúffufyrirtæki sem heitir Georgia Export Import, USA, hef ég aldrei heyrt þær áður. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt um Staðarstað hf. heldur. Reykvísk endurtrygging var ekki til þegar ég var hjá Hafskipi. Hvers vegna þá allt þetta? spyr ég. Hvers vegna, eftir allt það sem gengið hefur á í sambandi við stöðvun á rekstri Hafskips hf., stend ég, sem hvorki er í Hafskip né Útvegsbankanum og hef ekki verið í þrjú ár, hér? Það er vegna pólitískra tengsla minna og ekkert annað. Og það er ljótt. En hvorki Ólafi Ragnari Grímssyni né neinum öðrum hér inni mun takast að fórna mér í þessu tafli stjórnmálanna þó svo að ég viðurkenni að þetta hefur sín áhrif. Það hefur sín áhrif á alla að verða fyrir þeim rógi og rógskrifum sem ég hef orðið að þola undanfarna daga. Ég á engan þann fjandmann, hvorki hér inni né neins staðar annars staðar í veröldinni, sem ég mundi óska þess að lenda í því sama og ég er að ganga í gegnum nú. Það get ég svo sannarlega sagt ykkur. Þetta er óskemmtilegt og það er þeim mun óskemmtilegra að ég held að það sem er verið að brjóta niður erlendis sé kannske það sem Íslendingar hafa átt lítið af, en það er af þekktum mönnum. Ég er einn af þeim og líklega þekktastur þangað til Kiljan fékk sín Nóbelsverðlaun. Og nú eru fleiri íslenskir drengir á sömu braut sem bera hróður Íslands vítt og breitt um veröldina. Guð gefi að þeir fari ekki í pólitík þegar þeir koma til baka, að þeir noti sína lífsreynslu á annan hátt.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. En ég ætla ekki að gerast það lítill að vera á einhvers konar flótta undan þessum tíma og því óáþreifanlega sem ég verð að horfast í augu við nú. Ég mun berjast eins og vant er á móti því og ég mun sigra! Það brýtur mig enginn. Það þarf meira en róg þó að maður viti ekki hvaðan hann kemur. Hann kemur hér, hann kemur þar. Hann kemur ofan og neðan, aðallega líklega að neðan. En guð gefi að ekkert ykkar þurfi að eiga þá lífsreynslu.
Ég stóð í þessum stól og varði einn af okkar ágætustu forustumönnum, sem þá var andstæðingur minn í pólitík og hefði verið enn þá, þegar hann var allt að því borinn morði eða þátttöku í því. Það voru erfiðir dagar fyrir þann mann. Og nú er ég að ganga í gegnum sömu erfiðleika. En látið ykkur ekki detta í hug, ekki eitt augnablik að það beygi mig eða sverti Sjálfstfl. Það gerir það ekki. Það endurkastast eins og „boomerang“ á þá sem voru upphafsmenn. Ég á þannig félaga erlendis að þeir láta ekki svona bergmál úr fjárlægð hafa áhrif á sig þó þeir hringi stundum á nóttunni og spyrji: Hvað er að ske, kæri vinur? Og eftir símtalið sit ég andvaka og hugsa: Hvað er að ske? Þið segið mér það kannske ef þið komist að því sjálf.