26.11.1986
Efri deild: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

186. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Hv. 8. þm. Reykv. var að ganga úr ræðustólnum og hafði þau orð um það frv. sem nú er til umræðu að það væri dæmigert plagg á kosningaári og þeirra sem væru að búa sig undir þann slag. Það heyrðist að sá hv. þm. er ekki að búa sig undir slíkt. Það heyrðist á þeim fullyrðingum hans að þær fasteignir sem byggðar hefðu verið úti um land hefðu verið byggðar fyrir brennandi peninga. Hann var ekki að meta það að þær fasteignir úti um land hafa verið að falla í verði, ekki út af því fyrir hvaða fé þær voru byggðar heldur vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á undanförnum árum.

Það var auðheyrt út frá tón hv. þm. að hann var ekki að búa sig undir að fara a.m.k. í framboð á Vesturlandi.

Umræða hans á annan máta um þetta frv. var á þann veg að ég hef sjaldan heyrt úr þessum ræðustól slíkar fordæmingar á því máli sem lagt hefur verið fram eða verið til umræðu. Ég sé ekki ástæðu til að fara að fjalla frekar um efni þess, enda hefur hv. flm. gert það, en mér fundust fullyrðingar hv. þm. á þann máta að ég taldi eðlilegt að mótmæla þeim út frá því að úti um land hefðu menn verið að byggja fyrir öðruvísi peninga en hefur verið byggt fyrir hér á þéttbýlissvæðinu. á nákvæmlega sama máta og fyrir sama fjármagn var fjárfest úti um land og á þeim stöðum þar sem nú er algert verðfall á íbúðarhúsnæði, burtséð frá því hvort um eftirspurn eða ekki er að ræða, með nákvæmlega sama fjármagni og fjárfest var í Reykjavík og engin breytileg staða þar á.Hann tengdi það einnig því að á sama tíma og á landsbyggðinni hefði verið byggt fyrir brennandi peninga hafi verið óeðlileg atvinnuuppbygging á landsbyggðinni. Ég veit ekki hvað það kemur þessu máli við. Það getur varla verið af öðru en því að hv. þm. telji eðlilegt að ræða málin á einhvern veginn öðrum grunni nú þegar hann hefur gengið út frá því að hann muni ekki fara í framboð. Það hlýtur að tengjast þeim orðum sem hann hafði í lok ræðu sinnar.