26.11.1986
Efri deild: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)
186. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að lýsa furðu minni á þeim ummælum hv. þm. Skúla Alexanderssonar að hann skuli leyfa sér að koma í ræðustól og bera mönnum á brýn að afstaða þeirra til einstakra mála mótist einfaldlega af því hvort þeir ætli að taka þátt í kosningum í vor eða ekki. (Gripið fram í.) Vill ekki hv. þm. Skúli Alexandersson koma hér í ræðustól á eftir og tala? Hann hefur kannske þegar sagt of mikið. En ég mótmæli harðlega slíkum málflutningi þegar alþm. bera þingbræðrum sínum á brýn að það sé eingöngu vegna þess að þeir ætli ekki í framboð að þeir hafi þá tilteknu afstöðu til mála sem þeir setja fram. Svona málflutningur er fyrir neðan allar hellur og ekki samboðinn virðingu eins eða neins þeirra þm. sem eiga sæti í þessari hv. deild. Ég verð að segja að þetta kemur mér mikið á óvart.
Í frv. sem hér um ræðir er gerð tilraun til að taka á vandamáli sem vissulega er til staðar, en ég held hins vegar að þetta sé ekki raunhæf tilraun til að koma til móts við og leysa þau vandamál sem eigendur fasteigna víðs vegar úti um land eiga við að glíma vegna þess að undirrót þess vanda er allt önnur. Á það hefur verið bent og á það benti m.a. hv. 8. þm. Reykv. áðan og ég tek undir með honum. Ég held að með þessum hætti sé þetta ekki framkvæmanlegt og alls ekki raunhæft. Ég hef a.m.k. mjög miklar efasemdir um að það sé hægt að gera þetta svona.
Hins vegar er staðreynd málsins sú að allt frá því árið 1981 og alveg þar til á þessu ári hefur hallað stórkostlega á landsbyggðina. Það hefur verið fólksflótti frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Flest ný störf hafa orðið til á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið fylgt af þeim ríkisstjórnum sem setið hafa frá 1981 og til þessa dags landsbyggðarfjandsamlegri stefnu. Það er mergurinn málsins. Meðan fólksflótti er frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins, meðan spenna er hér og yfirborganir á höfuðborgarsvæðinu verður fasteignaverð þar ávallt hærra. Þróuninni í fasteignaverðlagsmálum verður ekki snúið við nema með því að rétta hlut landsbyggðarinnar. Þá snýst þetta við af sjálfu sér. Þá hækkar verð fasteigna á landsbyggðinni. Meðan það kostar fimm sinnum meira eða allt að því að hita upp venjulegt íbúðarhús í Borgarnesi en það kostar að hita upp hús nákvæmlega sömu stærðar á Reykjavíkursvæðinu verður þessi munur fyrir hendi. Þó ég nefndi Borgarnes hér á þetta við um miklu, miklu miklu fleiri staði. Við leiðréttum ekki þetta mál með því kerfi eða fyrirkomulagi sem frv. gerir ráð fyrir. Þess vegna held ég að frv. sé ekki raunhæft. Þessi vandi er annars eðlis. Það þarf að ráðast gegn honum með því að breyta stefnunni gagnvart landsbyggðinni. Það veit ég að hv. þm. Skúli Alexandersson getur tekið undir þótt hann því miður gerði þetta mál að umtalsefni með þeim hætti áðan sem ég hlýt að harma og þykist vita að hafi kannske verið óviljandi og hann leiðrétti þá á eftir.
En ég endurtek að með fullri virðingu fyrir flm. þessa frv. held ég að þetta sé alls ekki raunhæf leið til að leysa þennan vanda. Það verður að gerast með allt öðrum hætti.