26.11.1986
Efri deild: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (1009)
186. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Hv. 8. landsk. þm. nefndi í ræðu sinni að með samþykkt frv. og framkvæmd laganna mundi það gerast að ýtt væri undir hinn frjálsa markað. Það er tilgangur frv. að hækka hið almenna verð á íbúðum sem á undanförnum árum hafa verið að falla í verði langt niður fyrir það sem eðlilegt markaðsverð ætti að vera og þar af leiðandi eigendur þeirra að tapa. Þetta er fyrst og fremst að gerast á landsbyggðinni. Tilgangur frv. er einmitt sá að reyna að vega á móti þessari þróun. (KolJ: Það er misskilningur á orðum 1. flm.) Tilgangurinn er að vega á móti þeirri þróun að verðlag íbúða haldi stöðugt áfram að lækka. Það kom einmitt fram í ræðu 1. flm. Það má benda á að jafnvel á stað eins og Hvammstanga, þar sem hv. 1. flm. er sveitarstjóri og hefur verið mjög góð uppbygging og atvinnuástand má segja sæmilegt fram á síðustu daga, hefur sú þróun átt sér stað að verð íbúða hefur verið fallandi. Það má vel vera að sú tilraun, sem hér er bent á að gera, mundi ekki gagna að fullu, en við erum að benda þarna á eina mögulega leið til að andæfa gegn þessari þróun.
Ýmsar leiðir hafa verið ræddar og reynt að koma til framkvæmda í sambandi við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Ég held að það sé rétt, fyrst við erum að ræða um þann þátt mála í hv. deild, að senda Búseta hamingjuósk vegna þess að sá félagsskapur er í dag að hefja starfsemi sína. Það hafa ýmsir gert lítið út þeirri leið sem þeir hafa barist fyrir, en sem betur fer virðist nú þar verið að stíga fyrsta skrefið.
Hv. 5. landsk. þm. sagði að það sem ég flutti hér hefði ekki verið mér samboðið eða deildinni samboðinn sá málflutningur sem ég hafði í frammi. Hv. 8. þm. Reykv. Skyldi hann vera...? (VI: Á að skoða hvort hann er frammi?) Já, ég held að það væri skemmtilegra.
Hv. 8. þm. Reykv. hefur sjálfsagt brugðið sér eitthvað frá og þykir mér það heldur miður. (Gripið Fram í: Það er verið að leita að honum.) Þykir mér það heldur miður í miðri þessari umræðu. (Forseti: Það er verið að leita að þm. og fá hann inn í salinn.) Ég bíð þess að hv. 8. þm. Reykv. gangi í salinn og eykst nú spennan nokkuð. (StB: Fyrirgefðu.) Nú, ég var að segja að hv. 5. landsk. hefði haft á orði að það sem ég sagði í minni fyrri ræðu hefði ekki verið samboðið málflutningi í hv. deild. Ég tel mig ekki hafa sagt neitt annað en það sem efni gafst til að segja þar sem hv. 8. landsk. þm. líkti frv. okkar við kosningaplagg sem við værum að leggja fram fyrir kosningar, eða það lá raunverulega í hans orðum, til að láta á okkur bera. Og ekki nóg með það. Ég nefndi ekki það sem hann bætti við. Hann bætti því við að með svona málflutningi og öðrum líkum væru menn að gerast góðir við börn og gamalmenni. Ég taldi alveg ástæðulaust að tíunda það í sambandi við annað sem hv. 8. landsk. þm. sagði í sambandi við frv. sem hér er til umræðu.
Ef minn málflutningur hefur ekki verið deildinni samboðinn held ég því fram að málflutningur hv. 8. þm. Reykv. hafi ekki verið deildinni samboðinn. Vera má að hv. 5. landsk. þm. hafi talið ástæðu til að fara upp í ræðustól til að draga úr þeim stóryrðum sem hv. 8. þm. Reykv. var með og ég taldi mig þurfa að svara.