26.11.1986
Efri deild: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

186. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Flm. (Þórður Skúlason):

Virðulegi forseti. Út af orðum hv. síðasta ræðumanns vildi ég mega benda honum á töflu nr. 4. Þar er borið saman staðgreiðsluverð og byggingarkostnaður, m.a. í Reykjavík, þar sem kemur fram að staðgreiðsluverðið á fermetra er 22 518 kr. en byggingarkostnaðurinn 30 852. Hann vitnaði til þróunar sem hefur orðið á verði íbúðarhúsnæðis í Reykjavík og er birt á bls. 4 í þessu yfirliti. Mál hafa þróast þannig að mér sýnist að núna sé hóflegur mismunur á milli byggingarkostnaðar og staðgreiðsluverðs. Það þarf ekki að segja manni neitt um að það hafi verið hagstæðara eða eðlilegra verð á íbúðarhúsnæðinu á þeim tíma sem það var í lágmarki samkvæmt þessari töflu, á þeim árum sem hann gat um. Ég held að það sé raunar ekkert samhengi þar á milli, hvort það hafi verið hagstæðara fyrir þá sem áttu íbúðir, þótt verðið væri lægra, síður en svo.

En hugmyndin sem hér er sett fram er fyrst og fremst sett fram í því augnamiði að reyna að leiðrétta þann gífurlega mun sem maður sér best sá töflu 4. Ef maður tekur t.d. Akranes er staðgreiðsluverðið þar 13 454 kr. á fermetra, en byggingarkostnaðurinn 27 403. Það er þetta sem við flm. þessarar till. erum með hugmyndir um að reyna að hafa áhrif á.

Ég er hins vegar alls ekki að gera því skóna að afnema hinn frjálsa markað, en við viljum reyna að hafa áhrif á hann. Það er það sem við erum að reyna með þeim hugmyndum sem við hérna setjum fram. Ég hef staðfasta trú á því að það sé hægt með þeim hætti sem hérna er gerð tillaga um. Ég held að þetta mál sé svo þýðingarmikið og snerti svo marga íbúa þessa lands að það sé ófært annað en að koma fram með einhverjar hugmyndir til lausnar þar á. Ég verð að lýsa furðu minni á þeim viðbrögðum sem þessi hugmynd fær. Ég hygg að þau séu allt önnur á öðrum stöðum í þjóðfélaginu, jafnvel hjá þeim sem hafa betra vit á, með fullri virðingu fyrir hv. þingdeildarmönnum sem hér hafa talað.

Ég hef t.d. rætt þetta við fulltrúa í Fasteignamati ríkisins. Þeir telja að einmitt þessi leið geti leyst fasteignamarkaðinn út úr þeirri kreppu og sjálfheldu sem hann er í víða úti um land og hún geti líka leitt til þess að verðsveiflur á íbúðarhúsamarkaði í höfuðborginni verði jafnaðar. Auðvitað er það til hagsbóta fyrir allan almenning.

Ég endurtek að ég er raunar alveg furðu lostinn á þeim viðbrögðum sem þessi hugmynd fær hér án þess að þau viðbrögð séu á nokkrum rökum byggð. Ég get ekki heyrt það.