27.11.1986
Sameinað þing: 22. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)
180. mál, stefnumótun í umhverfismálum
Flm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál., sem er 180. mál, um stefnumótun í umhverfismálum. Auk mín flytja þessa till. þeir Friðrik Sophusson, Friðjón Þórðarson, Halldór Blöndal, Jón Magnússon, Pétur Sigurðsson og Salome Þorkelsdóttir. Ég vil leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa texta till., en hún hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera áætlun um stefnumótun í umhverfismálum. Tilgangur þeirrar áætlunar verði að efla alhliða umhverfisvernd og varnir gegn hvers konar mengun og öðrum skaðlegum umhverfisáhrifum jafnframt því að vinna að varðveislu og sem skynsamlegastri nýtingu náttúrugæða landsins.
Að þessum markmiðum skal unnið með því að koma á skipulegri yfirstjórn umhverfismála í Stjórnarráði Íslands og samstarfi þeirra aðila sem fjalla um náttúruvernd, mengunarmál og aðra þætti umhverfismála.
Við gerð slíkrar áætlunar verði sérstaklega fjallað um endurskoðun núgildandi laga um náttúruvernd og mengunarvarnir svo að komið verði í veg fyrir frekari eyðingu gróðurs og annarra landkosta og vaxandi mengun í lofti, láði og legi.
Áætlun þessi um stefnumótun í umhverfismálum skal lögð fram í upphafi næsta reglulegs Alþingis.“
Herra forseti. Ástæða þess að till. þessi um stefnumótun í umhverfismálum er lögð fram á Alþingi nú er sú að umhverfismál og umhverfisvandi hefur orðið æ stærri þáttur í lífi þjóða, hvort sem erum við Íslendingar eða aðrar þjóðir, nálægar og fjarlægar. Mönnum hefur orðið æ ljósara hve mikilvægur þáttur umhverfismál eru í lífsskilyrðum og í lífsgæðum þjóða.
Þessi mál hafa raunar verið mjög á dagskrá á undanförnum vikum og mánuðum og minnast menn í þeim efnum Chernobyl-slyssins í Sovétríkjunum, þeirra tveggja slysa sem ollu verulegri mengun árinnar Rín og reyndar eyddu þar nánast öllu lífi fyrir örfáum vikum, einnig er kafbátur fórst í Atlantshafi sem olli reyndar nokkrum mengunaráhrifum. Allir þessir viðburðir, sem hafa átt sér stað innan tiltölulega skamms tíma, sýna að þessi mál eru ekki bundin við eitt land eða eitt ríki heldur er raunverulega við alþjóðlegt vandamál að etja sem þjóðir heims hafa í vaxandi mæli af eðlilegum ástæðum gefið mun meiri gaum síðari árin en var hér áður fyrr. Þann áhuga má að verulegu leyti rekja til umhverfismálaráðstefnu hinnar fyrstu sem Sameinuðu þjóðirnar héldu í Stokkhólmi árið 1972 þar sem samþykkt var stefnuályktun mjög víðtæk í umhverfismálum sem mörg ríki hafa síðan notfært sér til að lögleiða að hluta til í innanlandsrétti sínum.
Það má spyrja hvernig þessum málum er hagað á Íslandi vegna þess að þótt umhverfismálin séu í eðli sínu að verulegu leyti alþjóðleg er það vitanlega hlutverk hverrar þjóðar og ábyrgð hennar að setja viðhlítandi reglur um umhverfismál í innanlandsrétti sínum. Því má varpa þeirri spurningu fram hvernig ástand þeirra mála er hér á landi.
Eins og menn vita búum við Íslendingar ekki við neina heildarlöggjöf í umhverfismálum. Hins vegar hafa verið gerðar allnokkrar tilraunir til að fá slíka löggjöf samda og setta, en ekki hefur það tekist til þessa. Í þeim efnum má minna á að 1975 skipaði þáv. ríkisstjórn nefnd sérfræðinga til að gera drög að heildarlöggjöf um umhverfismál. Niðurstaða starfs þeirrar nefndar var lagafrv. sem þáv. ríkisstjórn lagði fyrir Alþingi á vormánuðum 1978. Það frv. kom ekki til neinnar endanlegrar afgreiðslu á Alþingi og hefur ekki verið endurflutt af þeim ríkisstjórnum sem síðan hafa setið. Hins vegar hafa þmfrv. nokkrum sinnum verið flutt sem byggja mjög á þessu fyrsta frv. Raunverulega er það fyrsta frv. með tiltölulega litlum breytingum sem felst í þeim frv. sem hafa verið lögð fyrir Alþingi.
Síðast var frv. um þetta efni flutt af mér og nokkrum öðrum alþm. Sjálfstfl. á þinginu 1983-84. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar vorið 1978 voru umhverfismál færð með ríkisstjórnarsamþykkt undir félmrn. Þá gaf núv. félmrh. í umræðum um frv. á þinginu 1983-84 þá yfirlýsingu að væntanlegt væri ríkisstjórnarfrumvarp um málið og væri það til skoðunar og sérstakrar athugunar í ráðuneyti hans. Það frv. hefur ekki enn séð dagsins ljós. Af þeim ástæðum hafa þmfrv. ekki verið aftur flutt um þennan málaflokk.
Mér er kunnugt um að í ráðuneytum, og þá fyrst og fremst á vegum félmrn., hefur farið fram allnokkur vinna til endurskoðunar því lagafrv. sem fyrst var flutt árið 1978, en sú vinna hefur ekki enn þá séð dagsins ljós í búningi lagafrv. Það er þess vegna mjög þýðingarmikið að Alþingi láti ekki öllu lengur hjá líða að taka þessi mál til umræðu. Raunar vil ég nefna að fyrir Alþingi liggur önnur till. til þál. um náttúruverndar- og umhverfismál þar sem 1. flm. er hv. þm. Hjörleifur Guttormsson.
Það er full ástæða til þess, eins og ég sagði, að taka þessi mál til umræðu á Alþingi vegna þess að með hverju árinu sem líður verður mikilvægi þeirra meira og augljósara fyrir alla þjóðina, ekki aðeins þá sem í dreifbýli búa heldur ekki síður og kannske enn fremur fyrir þá sem í þéttbýli búa. Þetta eru mál sem snerta lífsgrundvöll allrar íslensku þjóðarinnar.
Það er ekki fyrir það að synja að þótt við höfum enga heildarlöggjöf um umhverfismál enn sem komið er, sem flestar þjóðir í kringum okkur búa þó við, búum við allvel að lagasetningu engu að síður á þessu sviði. Við höfum haft í bráðum tvo áratugi náttúruverndarlöggjöf sem að vísu þarfnast endurskoðunar og er því verki nú nánast lokið. Ákvæði um mengun er allvíða að finna í lögum, þ.e. varnir gegn mengun, en helst eru það ákvæðin í lögunum nr. 109 frá 1984, um hollustuvernd og heilbrigðiseftirlit, þar sem sérstakur kafli fjallar um mengunarvarnir. Einnig höfum við ákvæði í lögum um vernd gróðurs og sérlög um vernd dýra þannig að það má segja að lagasetning sé í sjálfu sér ekki í slæmu horfi á hinum einstöku sviðum.
Hins vegar, þegar litið er á stjórnun þessara mála og stefnumótun af hálfu ríkisvaldsins og samræmda yfirstjórn, kemur í ljós að þar er pottur brotinn. Umhverfismálin hér í okkar landi heyra undir átta eða níu ráðuneyti, þ.e. stjórnsýslan er öll í pörtum ef svo mætti að orði komast. Ég vil ekki segja í molum, það væri kannske heldur sterkt að orði kveðið, en með þessi mál er farið í miklum meiri hluta ráðuneytanna sem heyra til Stjórnarráði Íslands. Náttúruverndin heyrir, svo að ég taki aðeins dæmi sem þm. ugglaust þekkja, undir menntmrn., svo og friðun hreindýra. Mengunarmálin heyra undir heilbrrn., mengun sjávar hins vegar undir samgrn. Umhverfismál á öllum varnarsvæðunum heyra undir utanrrn. Þannig mætti áfram telja.
Ég hygg að einhver mesti vandinn sem snýr að stjórnsýslu og lagasetningu sé því ekki á sviðum hinna einstöku efnisþátta eða málaflokka heldur liggi hann fyrst og fremst á því sviði sem við getum nefnt heildarstjórnun, yfirstjórn þessara mála. Það gefur auga leið að þar sem þau eru skipt milli svo margra ráðuneyta verður þar í fyrsta lagi um tvíverknað að ýmsum verkefnum að ræða. Það hlýtur að gæta skorts á skipulagningu um framkvæmd nauðsynlegra verkefna. Og það verða vitanlega þá á vegi manns vissir samvinnu- og skipulagsörðugleikar í því sem lýtur að yfirstjórn og stefnumótun í umhverfismálum. Þess vegna held ég að sé meginþörf á því að komið verði á fót skipulagsbundnu samstarfi allra þeirra aðila sem starfa að umhverfismálum í æðstu stjórnsýslu landsins.
Þessi till. fer ekki fram á það fremur en það lagafrv. sem ég gat um og flutt var á þinginu 1983-84 að sett verði á fót sérstakt umhverfismálaráðuneyti. Það er ekki heldur útilokað með þessum tillöguflutningi, en fyrsta skrefið hlýtur alla vega að vera það, eins og fram kemur í till., að samræma og koma á skipulegri yfirstjórn umhverfismála í Stjórnarráði Íslands og samstarfi þeirra aðila sem fjalla um náttúruvernd, mengunarmál og aðra þætti umhverfismála. Slíkt skipulagsbundið samstarf er ekki fyrir hendi í dag. Það má hugsa sér það í ýmiss konar mynd, m.a. með sérstakri samstarfsnefnd eða stjórnarnefnd allra ráðuneytanna sem hér eiga hlut að máli, að slíku stjórnvaldi, slíkri stjórnarnefnd yrði einfaldlega komið á laggirnar til þess að annast framkvæmd í þessum málum þannig að um skipulegt starf yrði að ræða. Alla vega gæti þetta orðið fyrsta skrefið, það skref sem raunverulega er hægt að stíga þegar með einfaldri ríkisstjórnarsamþykkt og þarf hvorki lagasetningu né heldur reglugerðarsetningu til, þó að nauðsynlegt væri og ugglaust æskilegt að setja formbundna reglugerð um slíka yfirstjórn og samræmingu á yfirstjórn í umhverfismálum innan Stjórnarráðs Íslands.
Menn geta velt því fyrir sér hvort þessi mál eru í slíku óefni hér á landi að það sé ástæða til að vera með áhyggjur eða vangaveltur í þessum efnum. Það má vel vera að vegna strjálbýlis landsins eigum við ekki við að etja þau mörgu og alvarlegu og raunar stórhættulegu umhverfisvandamál sem nágrannaþjóðirnar þurfa við að búa þar sem þéttbýlið er mun meira og iðnvæðingin. Það er alveg rétt. Það er um gífurlega mikil vandamál að ræða þó að við förum ekki lengra en til Norðurlandanna þar sem skógar og vötn eru nú í mikilli eyðingarhættu eins og menn vita vegna hins súra regns sem berst frá iðnaðarsvæðum Bretlands og Mið-Evrópu. Við þekkjum einnig ástandið á meginlandi Evrópu þar sem mengunarvandamálin eru vitanlega af allt annarri stærð en hér. En það er alveg ljóst að á skal stemma að ósi og ef við komum þessum málum ekki í skipulegt horf hjá okkur fyrr en síðar munum við standa frammi fyrir miklu meiri vandamálum en við eigum við að etja í dag.
Fyrir það er þó ekki að synja að allvíða er pottur brotinn í þessum efnum og kannske er gróðureyðingin einna stærsta vandamálið sem við eigum við að etja fremur en mengunin. Að mínu mati er gróðureyðingin, sem á sér í stað í landinu í dag, og í öðru lagi ástandið í frárennslismálum frá byggð í þéttbýli mestu umhverfisvandamálin.
Það mætti tala langt mál um ástandið að því er varðar gróður landsins. Ég vil í þessu tilefni, með leyfi hæstv. forseta, aðeins vitna í umræður og erindi sem voru flutt á 13. landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga sem fram fór þann 10.-12. sept. í haust. Þar voru umhverfismál á dagskrá og þar töluðu tveir mætir fræði- og vísindamenn á þessu sviði. Ég vildi geta stuttlega um inntak þess sem þeir sögðu þar. Annar þeirra var Ingvi Þorsteinsson magister, en hinn Sigurður Blöndal skógræktarstjóri.
Svo að ég vitni í frásögn í Sveitarstjórnarmálum af þessu landsþingi sveitarstjórnarmála kvað Ingi gróðureyðingu vera eitt helsta vandamálið. Nýtanlegt gróðurlendi væri aðeins 15-20% af því sem það var á landnámsöld, hefði minnkað úr 70 þús. km2 í 25 þús. km2 og skóglendi úr 25 þús. km2 í 1250 km2. Sigurður Blöndal kvað fráleitar þær fullyrðingar, sem oft væru hafðar á lofti, um óspillta náttúru á Íslandi. Náttúra Íslands væri spilltari en í nokkru öðru nálægu landi og kvað hann landið gróðurfarslega í tötrum.
Ég nefni álit þessara tveggja mætu vísindamanna um ástandið í gróðurverndar- og gróðureyðingarmálunum. Í grg. koma fram frekari upplýsingar um að landgæðin í þessum efnum eru nú aðeins 20% eða 1/2 hluti af því sem þau voru fyrr á öldum.
Það mætti tala langt mál um einstaka þætti þessara mála, en meginatriðið og það sem fyrir flm. þessarar þáltill. vakir er einfaldlega að hér verði gerð skjótlega á nokkur bragarbót. Það er ekki beðið um sérstakt ráðuneyti, alla vega ekki á þessu stigi, en það er beðið um samræmdar aðgerðir sem miða að heildaryfirstjórn og nýrri skipulagningu í þessum málum öllum.