27.11.1986
Sameinað þing: 22. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)
180. mál, stefnumótun í umhverfismálum
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vil aðeins í stuttu máli andmæla því sem hv. 1. þm. Vesturl. sagði áðan og þeim orðum sem hann lét sér um munn fara, að það hefði verið talað um málið í nöldurtón. Þetta er rangt. Ég hygg að allir þeir sem hafa talað hafi tekið undir efnisatriði málsins en bent á það að skynsamlegra hefði verið að haga vinnubrögðum með öðrum hætti. Það hefði verið vænlegra til að tryggja málinu framgang. Um málið sjálft talaði enginn maður í nöldurtón, þvert á móti tóku menn undir þau atriði efnislega sem hér eru til umræðu. En vinnubrögðin hefðu vissulega ekki aðeins mátt vera önnur, þau hefðu átt að vera önnur ef menn vilja þessu máli virkilega vel.