27.11.1986
Sameinað þing: 22. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)
Greiðslur afurðastöðva til bænda
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það gerist nú a.m.k. í þriðja ef ekki fjórða sinn á stuttum tíma að við ræðum um landbúnaðarmál utan dagskrár og því miður ætíð í þeim símskeytastíl sem raun ber vitni. Ég vil í framhaldi af því ítreka ósk mína og áskorun til hæstv. landbrh. um að hann beitti sér fyrir opinni ótakmarkaðri umræðu um þessi efni á Alþingi á næstu dögum. Það er full þörf á eins og allar þessar umræður hafa sýnt.
Það er einnig bagalegt að ræða þessi mál á svo knöppum tíma þegar tekið er tillit til þeirrar staðreyndar að yfirleitt hefur mestur hluti þess tíma farið í ræðuhöld hv. stjórnarþm. sem þurfa að tjá sig um landbúnaðarstefnu eigin ríkisstjórnar.
Það er alveg ljóst að ábyrgð ríkisstjórnarinnar er ótvíræð í þessu efni ekkert síður en ábyrgð afurðastöðvanna. Ef lesin eru lög um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum er ábyrgð afurðastöðva bundin í 28. og 29. gr. VI. kafla og er ótvíræð, en ábyrgð ríkissjóðs eða ríkisstjórnar er bundin í VII. kafla 30. gr. þannig að það eru fyrst og fremst tveir aðilar sem bera ótvíræða lagaskyldu. En ef menn ættu að hafa ráð hv. 11. landsk. þm. mundu menn aldrei ræða þessi mál heldur trúa á lagabókstafinn í blindni. Það gæti reynst mönnum dýrkeypt, sbr. reynsluna af vinnubrögðum þessarar hæstv. ríkisstjórnar í framleiðslustjórnun landbúnaðarvara, því ég leyfi mér að halda því fram að það komi fyllilega til greina að hæstv. ríkisstjórn hafi með ráðstöfunum sínum ekki aðeins brotið margendurtekið ýmsa lagabókstafi, svo sem sveitarstjórnarlög, jarðalög og fleiri, heldur einnig ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnrétti þegnanna þar sem fullvirðisréttur er tekinn eignarnámi af sumum á sama tíma og hann er greiddur fullu verði til annarra. Ef það er ekki mismunun veit ég ekki hvað er mismunun.
Herra forseti. Það er full ástæða til að taka þessi mál upp hér m.a. vegna yfirlýsinga ábyrgra aðila, svo sem bankastjóra viðskiptabankanna og bankastjóra Seðlabanka Íslands, sem hafa í fjölmiðlum undanfarna daga fullyrt að af þeirra hálfu verði ekkert frekar gert til að gera afurðastöðvunum kleift að standa við ákvæði laganna. Það er ljóst að afurðastöðvarnar geta það ekki nema til komi meiri aðstoð. Það er spurt um þá aðstoð hér, herra forseti, og ég ítreka að ég skora á hæstv. landbrh. að lýsa því yfir að á næstu dögum verði leyst úr þessum málum þannig að við ákvæði laganna verði staðið að fullu og það á réttum tíma, til að mynda hvað varðar sauðfjárbændur þann 15. des. n.k.