27.11.1986
Sameinað þing: 22. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

184. mál, varaflugvöllur á Akureyri

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég undraðist að hv. þm. Halldór Blöndal skyldi þurfa að byrja á því í ræðu sinni að hnýta í Þórarin Þórarinsson fyrrv. hv. þm. með svo ósmekklegum hætti.

Herra forseti. Við erum að ræða um möguleika á varavelli. Og spurningin er: Er þessi varaflugvöllur millilandaflugs nauðsynlegur? Við höfum verið án hans lengi og gengið vel, en það hefur að vísu kostað talsvert fé. Í meira en 98% tilfella er hægt að lenda í Keflavík með þeim tækjum sem þar eru, þannig að þörfin er ekki mikil. Lendingar á varavelli yrðu kannske 1-3 á ári og væri þá rólegt fyrir starfslið á Sauðárkróksflugvelli. Ég vil hins vegar árétta það sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sagði hér áðan, að varaflugvöllur er auðvitað ekki neitt verkefni sem á að vera númer 1, 2 eða 3 í flugmálum á Íslandi. Vandamálin sem við búum við í þessum efnum í flugi á Íslandi og þarfirnar svo margar óuppfylltar að ég tel að varaflugvöllur ætti ekki að komast á dagskrá, hvorki hér né annars staðar, fyrr en eftir nokkur ár í fyrsta lagi.

Það hafa verið samin allítarleg og vandlega unnin álit og áætlanir í flugmálum. T.d. var á árinu 1976 gefin út mikil bók um þetta og núna vorum við að ljúka, nokkrir saman, skýrslu um flugmál á Íslandi sem verður kynnt á morgun en það er bara ekki nóg að útbúa slíkar áætlanir þó nákvæmar séu og vandlega unnar þar sem öll verkefni eru sett í forgangsröð ef ekki eru til peningar. Heildarfjárveitingar til flugmála á Íslandi eru um 60 millj. kr. á ári. Ef við ætlum að vinna þetta verkefni sem flugmálanefnd hefur verið að vinna að á tíu árum þurfum við a.m.k. 200 millj. á ári og liðlega það. Þannig að þessi umræða er, eins og maður segir á gömlu sjómannamáli, komin svolítið út úr kortinu.

Ég held að alþm. sem sitja nú og koma til með að sitja hér á þinginu eigi fyrst og fremst að huga að því sem okkur vantar til eðlilegra samgangna innanlands með sæmilegu öryggi.

Ég verð að segja það hins vegar að það er auðvitað alveg ljóst að það væri mjög gott ef við gætum valið Akureyrarflugvöll sem varaflugvöll. Það er mjög „traffíkeraður“ flugvöllur með 110 þús. farþega á ári. Umferðin á Sauðárkróki er tíu sinnum minni, aðeins 10%, 11 000 farþegar á ári. Til samanburðar er t.d. flugumferðin í ágúst í Vestmannaeyjum í einn mánuð meiri en árstraffíkin á Sauðárkróki. Á Sauðárkróki er hér um bil ekki neitt nema malarflugbraut, að vísu er svokallaður „lokalizer“ eða miðlínusendir þarna kominn og þarna eru auðvitað hin ákjósanlegustu skilyrði á margan hátt. En þarna vantar allt. Á Akureyri vantar afar lítið miðað við það sem er á Sauðárkróki. Það er ekki einu sinni malbikuð braut en hún þyrfti helst að vera um 7500 og helst 8000 fet, 2440 m. Og það þyrfti að lengja Akureyrarflugvöll um 500 m til þess að ná því marki og það kostar enga smápeninga. Það kostar talsvert á annað hundrað millj. kr. og meira til ef fullkominn ljósabúnaður er settur upp.

Þarna er eftir upplýsingum flm. allt til alls á Akureyri. Það er t.d. nefnt að þar sé stórt sjúkrahús og allir vita að þar er góð sundlaug og Sjallinn eins og var nefnt áðan og ágætt að lenda í blindflugi í norðanátt. Það er ekki vandamálið sem við erum að eiga við núna. Þegar ólendandi er í Keflavík er venjulega sunnan suðvestan átt eða sunnan suðaustan átt og mjög lágskýjað. Í slíku veðri erum við laus við það á Norðurlandi. Vandamálin liggja ekki í flugleiðsögutækjum, hvorki ILS-system eða MLS sem hv. þm. Steingrímur Sigfússon nefndi. Það er ekki vandamálið. Það er vandamálið að geta tekið af flugvellinum eða hætt við lendingu við slæm skilyrði ef hreyflar bila og það er m.a. sagt í þskj. og vitnað til Hilmars Baldurssonar, með leyfi forseta:

„Hilmar sagði enn fremur að eina vandamálið varðandi öryggi við Akureyrarflugvöll væri ef hreyfilbilun yrði í DC-8 eða álíka flugvél í slæmu skyggni í aðflugi inn Eyjafjörð.“

Í suðlægri átt er auðvitað oft bjart fyrir norðan en ef flugvélar geta ekki með fullu öryggi gert aðflug á Akureyri eða tekið af vellinum með hreyfil bilaðan getum við ekki valið Akureyri. Öryggið er númer eitt.

Herra forseti. Um þetta mætti auðvitað margt fleira segja, ég er hérna með heila bók um þetta efni m.a., og auðvitað væri þörf á að ræða þessi mál miklu betur en þau eru að mínum dómi ekki knýjandi og ég held að þegar að því kemur að menn fara að velja varaflugvöll geti Egilsstaðir ekki síður komið til greina hvað öryggi snertir. Það er ákaflega þröngt fyrir hraðfleygar og miklar vélar að lækka sig niður í þröngan fjörð. Það er mjög þægilegt fyrir þá sem eru vanir þessu, sem eru búnir að stunda þetta í lengri tíma, en útlendir flugmenn, sem aldrei hafa kynnst þessum aðstæðum, miklum óróa í lofti og háum fjöllum til beggja hliða, háum fjöllum í suðri, mundu fáir leggja í það trúi ég.

Ég samþykkti það á sínum tíma í þessari nefnd, og um álit okkar var beðið, að nefna Sauðárkróksflugvöll fyrst. Það kostar þó ekki meira en 188 millj. kr. á verðlagi ársins í fyrra að lengja brautina og malbika hana alla og ganga frá flugvellinum sem svari nægilega kröfum fyrir millilandaflug, það er þó ekki meira. Til samanburðar má nefna að nýja flugbrautin á Egilsstöðum á að kosta meira en 150 millj. kr. En eins og ég segi, það væri auðvitað mjög gaman ef það væri hægt með fullu öryggi að nota Akureyri þar sem allir hlutir eru fyrir hendi en flest þetta vantar á Sauðárkróki.