02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)
29. mál, alþingiskosningar og þinghald
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Alþingi hafði breytingar á stjórnarskránni til meðferðar á vorþinginu 1984 og ég held að það hafi verið í hugum allra alþm. þá, þegar við samþykktum þessi orð, með leyfi hæstv. forseta, í 31. gr., „Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri hlutbundinni kosningu til fjögurra ára í þessum kjördæmum“, að menn mundu skilja þessi orð svo að menn mundu halda sig við kjörtímabilið þegar boðað yrði til alþingiskosninga. Ég sé satt að segja ekki að það dugi að vitna í einhverja lögfræðinga eða lögmenn utan þingsins þegar við erum að túlka lagagrein sem obbinn af okkur setti sjálfur vorið 1984 og staðfestum síðan á næsta þingi á eftir inni í þessum sal. Á þessu þingi eru þeir alþm. sem samþykktu þessa breytingu á stjórnarskránni. Við ættum að skoða hug okkar sjálf um hvernig við viljum skilja og túlka þessi orð en ekki leita út fyrir þingið til þess.
Mín skoðun er tvímælalaust sú að ef kosningar dragist fram yfir 25. apríl sé um hreint brot á stjórnarskránni að ræða. Ég tel á hinn bóginn að heimilt sé að kjósa í sömu viku sumars og áður og tel að sá skilningur hafi jafnan verið við lýði þó að skakkaði tveim dögum að ef menn héldu sig við sömu helgi ársins héldu menn sig við þetta fjögurra ára kjörtímbil. Fyrir því eru ótal dæmi.
Ég vil líka segja, herra forseti, og ég held að ég brjóti af mér þegar ég ræði aðeins um stjórnarskrána, að fyrir liggur forsetabréf, útgefið af Ólafi Thors árið 1963, þar sem tekið er af skarið um að sá skilningur hafi verið ráðandi þá að rétt væri að halda sig við kjörtímabilið þegar ákveðið yrði hvenær kosningar færu fram. Ef menn vilja á hinn bóginn halda sig við hin almennu lög hefði verið rétt að hafa ...(Forseti: Má ég vekja athygli hv. þm. á því að nú mun vera augljóst að þetta er orðið meira en örstutt athugasemd.) Þetta er meira en örstutt athugasemd, enda er nú mikið í húfi þar sem er sjálf stjórnarskráin. (Forseti: Samkvæmt stjórnarskránni ber okkur að halda lög um m.a. þingsköp.) Það hefði verið einfaldast að halda sig við að kjósa laugardag á s.l. sumri. Ég held að ekki sé hægt að leggja Alþingi niður bara af því mönnum dettur það í hug.