02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

163. mál, úrbætur í ferðaþjónustu

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir svör hans. Það kom mér ekki á óvart að hann hafði tekið allmyndarlega á þessu máli því að mér er mætavel kunnugt um áhuga hans og skilning á mikilvægi þessarar atvinnugreinar og mikilvægi þess að styðja við það sem gera þarf í þeim efnum.

Hann lýsti nokkuð að hér hefði farið fram mikil upplýsingasöfnun, en einkum heyrðist mér vera þar um að ræða upplýsingar hvað varðar gistiaðstöðu. Ég hlýt því að minna á að það er ýmislegt annað, sem til er tekið hérna í till. okkar, sem mjög brýnt er að fá upplýsingar um ekki síður en gistinguna sem er kannske miklu auðveldara að safna upplýsingum um og er mikill uppgangur í. Það er ýmislegt annað sem hefur setið á hakanum, verkefni sem e.t.v. hafa verið látin liggja í láginni vegna þess að þau eru ekki beinlínis arðbær fyrir þá sem hljóta að framkvæma þau verk. Þar er ég fyrst og fremst að hugsa um atriði eins og leiðamerkingar og eftirlit, aðgang að áhugaverðum stöðum og hreinlætisaðstöðu ekki síst. Það eru þessi atriði sem ég vildi sérstaklega biðja hæstv. ráðh. um að athuga vel og fylgja vel eftir að verði tekin til athugunar og raunverulega gerðar tillögur til úrbóta. Hæstv. ráðh. minntist á að þessi skýrsla, sem kæmi út úr því starfi sem nú er hafið, gæti verið til í janúar og ég vænti þess að við megum eiga von á því að sjá þá skýrslu og treysti því að hann muni fylgja þessu máli vel eftir.