02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)

164. mál, hernaðarframkvæmdir

Utanríkisráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur á þskj .174 lagt fyrir utanrrh. tvær fsp. Svar við þeirri fyrri, sem hann þegar hefur lesið upp, er svohljóðandi: „Á árlegum fundi með byggingadeild sjóhersins, sem haldinn var í Norfolk í október s.l., voru eftirtaldar varnarliðsframkvæmdir heimilaðar fyrir 1987:

1. Bygging húsnæðis fyrir húsnæðisskrifstofu varnarliðsins, um 300 m2 bygging.

2. Félagsheimili fyrir varnarliðsmenn.

3. Húsnæði fyrir fjármála- og bókhaldsdeild flughersins.

4. Vegagerð, bifreiðastæði og að- og fráveitur fyrir nýtt 250 íbúða hverfi.

5. 250 íbúðir, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja.

6. Verkstæði, um það bil 180 m2, við flugskýli.

7. Tvær nýjar vararafstöðvar við byggingu kafbátaleitareftirlitsins.

8. Framhaldsframkvæmdir við gerð flughlaðs, akstursbrautir og flugvallarveg vegna nýju flugstöðvarinnar.

9. Viðgerð á akstursbrautum merktum S-2 og X3.

Kostnaður við allar ofangreindar framkvæmdir greiðist af Bandaríkjunum nema viðgerð á akstursbrautunum er síðast voru nefndar sem eru greiddar af Atlantshafsbandalaginu.

Svar við fsp. 2: Það hafa engar viðræður átt sér stað enn vegna aðildar að mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Eins og fram kom í skýrslu minni til Alþingis á s.l. vori er varnarmálaskrifstofan að gera úttekt á hugsanlegri aðild Íslands að mannvirkjasjóðnum. Ég geri ráð fyrir því að þeirri úttekt verði lokið í febrúar n.k. og að henni lokinni verði hægt að meta kosti og galla hugsanlegrar aðildar okkar að sjóðnum. Og að lokum: Greinargerð um þessar framkvæmdir, sem ég hef svarað hv. þm. um, var lögð fram í hv. utanrmn. Alþingis í morgun.