02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)
165. mál, herflugvöllur á Norðurlandi
Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja fyrir hæstv. utanrrh. fsp. varðandi hugsanlega þátttöku Bandaríkjahers eða Atlantshafsbandalagsins í uppbyggingu flugvallar á Norðurlandi.
Eins og menn vita hefur við og við komið upp umræða um að áhugi væri fyrir hendi af hálfu Bandaríkjahers og eða Atlantshafsbandalagsins að koma sér upp öðrum flugvelli af svipaðri stærð og Keflavíkurflugvöllur er, annaðhvort til að staðsetja eða eiga þar möguleika á staðsetningu eða millilendingu herflugvéla. Það hefur verið erfitt að fá haldgóðar upplýsingar um þessa hluti eins og endranær og hefur læðst að ýmsum grunur um að umræða um nauðsyn þess fyrir okkur Íslendinga að byggja sérstaklega upp varaflugvöll sé að einhverju leyti blandin áhuga NATO eða Bandaríkjamanna á því að koma sér upp annarri herstöð eða öðrum herflugvelli. Það er vitað og hefur verið vitað um nokkurt árabil að Bandaríkjamenn hafa vegna liðsflutninga og viðbúnaðar hér á spennutímum áhuga á því að auka afköst flugvalla af þessari stærð hér á landi. Um tíma héldu menn að fyrir hendi væri áhugi þeirra á því að bæta við Keflavíkurflugvöll sjálfan í þessu skyni, en nú virðist stefnan hafa verið tekin á að byggja sérstakan flugvöll á öðrum stað á landinu ef marka má þær fregnir sem af þessu hafa borist.
Fari svo að ríkisstjórnin hyggist ganga til viðræðna eða ljá máls á því að Bandaríkjaher eða Atlantshafsbandalagið taki til við að byggja upp flugvöll sem að einhverju leyti eigi að vera íslenskt samgöngumannvirki eins og maður hefur skilið það, sbr. fræga bókun ríkisstjórnarinnar um skilning á því hugtaki, er eðlilegt að spurt sé í framhaldinu, og það geri ég í 2. lið, herra forseti, hvort þess sé að vænta að ríkisstjórnin íslenska hyggist ganga lengra á sömu braut og leita hófanna hjá sömu aðilum um þátttöku í ýmissi annarri mannvirkjagerð, t.d. í samgöngumannvirkjum af öðru tagi, jafnvel í vega- og brúagerð, hafnagerð og byggingu skóla og dagvistarheimila. Því er um það sérstaklega spurt að gefnu tilefni.