02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
165. mál, herflugvöllur á Norðurlandi
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér er upplýst að íslensk stjórnvöld ætla í næstu viku að hefja formlegar viðræður við flotamálayfirstjórn Atlantshafsbandalagsins um byggingu varaflugvallar á Íslandi. Við vissum það áður að forusta Sjálfstfl. er sokkin á kaf í aronsku, en það er kannske dálítið nýtt fyrir suma að forusta Framsfl. með ráðherrum flokksins í ríkisstjórn er búin að beygja sig fyrir þessum sjónarmiðum og niðurlægingin, má segja, var alger eins og hún birtist í orðum síðasta hv. ræðumanns.
Það hljóta að vera tíðindi fyrir landsmenn að það eigi að vera hernaðaryfirvöld erlendis sem hafi áhrif á það og verði ráðandi um það hvar eigi að byggja samgöngumannvirki á Íslandi utan Keflavíkurvallar ekki minni í sniðum en þegar verið er að tala um sérstakan varaflugvöll.
Það hefði verið smekklegra að hæstv. utanrrh. hefði tjáð sig um mál þetta í síðustu viku þegar rætt var um sérstaka þáltill. um athugun á að koma upp varaflugvelli á Akureyri, þegar þm. höfðu aðstöðu til að leggja hér orð í belg undir rýmri ræðutíma en hér er. Af því að hæstv. forsrh. er hér hlýt ég að minna á sérstaka yfirlýsingu hans um daginn þess efnis að þetta verði rætt af hálfu ríkisstjórnarinnar með þeim skilningi að ekki væri um hernaðarframkvæmd að ræða. Sú yfirlýsing var honum lík.