02.12.1986
Sameinað þing: 23. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)
189. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu
Fyrirspyrjandi (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin eða réttara sagt skýrsluna því að svör hans tóku mið af henni. Samt getum við ekki rætt þessa skýrslu í þessum fyrirspurnatíma og verð ég því að láta það bíða betri tíma. Ég hef rétt haft færi á að hlaupa lauslega yfir hana meðan við höfum setið hér á fundi í dag. Það er frumlestur og ekki áreiðanlegur að öllu leyti, en ég vil strax koma þeirri athugasemd á framfæri að ég sé ekki að verjanlegt sé að setja það þak á mat heimilisstarfa til starfsreynslu sem lagt er til í öilum þeim tillögum sem fram koma í skýrslu hæstv. ráðh. Ég held að það sé eðlilegt að meta starfsreynslu við heimilisstörf eins og alla aðra starfsreynslu og gera þar engan greinarmun á.
Hæstv. ráðh. taldi tillögu 1 ganga lengst. Mér sýnist til laga 2 ganga lengst í fljótu bragði. Það fáum við færi að ræða um seinna þegar þessi skýrsla verður tekin til umræðu í hv. sameinuðu þingi.
Það er eitt til viðbótar sem ég vildi segja um þessa skýrslu núna strax. Í fljótu bragði er erfitt að sjá hvaða stefnu hún tekur. Hún kemur víða við og það er ekki beint ljóst hverjar eru í raun niðurstöður hennar. En þetta og annað sem lýtur að þessum málum er ekki færi á að ræða í fyrirspurnatíma, þar er ekki hægt að ræða heila skýrslu, þannig að við verðum að geyma okkur þá umræðu þar til þar að kemur.