20.10.1986
Neðri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

Magdalena M. Sigurðardóttir tekur sæti StH forsrh.

Forseti (Ingvar Gíslason):

Mér hefur borist bréf frá forsrh., Steingrími Hermannssyni, þar sem hann tilkynnir að hann sé á förum til útlanda, í opinberri heimsókn til Kína, og boðar það að Magdalena M. Sigurðardóttir muni taka sæti hans á Alþingi í fjarveru hans næstu vikur, enda hefur Magnús Reynir Guðmundsson á Ísafirði tjáð forsrh. að hann hafi ekki tök á að taka sæti ráðherrans meðan á þessari Kínaheimsókn stendur og brottför hans úr þinginu.

Magdalena M. Sigurðardóttir er komin til þings. Kjörbréf hennar hefur verið rannsakað áður. Hún hefur setið á fyrri þingum þessa kjörtímabils. Ég býð Magdalenu hjartanlega velkomna til starfa á Alþingi.