04.12.1986
Sameinað þing: 25. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

Afstaða til stöðvunar kjarnorkuvígbúnaðar

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég tel að hér hafi ekki tekist vel til. E.t.v. hefur utanrmn. starfað of hægt eða þingflokkur Framsfl. ekki í takt við starfshætti utanrmn. ellegar gangur mála á allsherjarþinginu hefur verið of hraður.

Ég mótmæli því harðlega getsökum hv. 3. þm. Reykv. um afstöðu þm. Framsfl. til frystingar kjarnorkuvopna. Við fluttum í fyrra nokkrir þm. Framsfl., þ.e. auk mín Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson, Haraldur Ólafsson, Þórarinn Sigurjónsson, Guðmundur Bjarnason, Jón Kristjánsson og Davíð Aðalsteinsson till. sem hljóðaði svo:

„Alþingi ályktar að lýsa þeirri skoðun sinni að Ísland eigi að leitast við að ná samstöðu með öðrum ríkjum Norðurlanda um frystingu á framleiðslu kjarnavopna og bann við tilraunum með kjarnavopn. Ísland skal hafa frumkvæði um tillöguflutning á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um þau mál á grundvelli ályktunar Alþingis frá 23. maí 1985.“

Afstaða okkar þessara flm. til málsins hefur ekki breyst og við höfum í undirbúningi tillögugerð um afvopnunarmál eins og áður hefur komið fram hér á hinu háa Alþingi. Því miður náði þessi tillaga ekki fram að ganga á síðasta þingi og var þó allnokkur tími til þess að ræða hana í utanrmn., en þaðan fékkst hún ekki afgreidd. Afstaða utanrrh. til till. kom fram við umræður og því miður hef ég nú ekki séð merki þess að utanrrh. hafi breytt afstöðu sinni, en hann lagðist gegn þessari till. með þeim rökum að hann taldi hana ekki vera í samræmi við ályktun Alþingis frá 23. maí 1985. Ég get hins vegar ekki fallist á þann skilning hans að þessi till. okkar eða frystingarheimildin stangist á við ályktun Alþingis frá 23. maí 1985.