04.12.1986
Sameinað þing: 25. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)

178. mál, könnun á tannlæknaþjónustu

Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Vegna þeirrar fsp. sem hv. 2. landsk. þm. beindi til mín í sambandi við þá till. sem hér er til umræðu þykir mér rétt að minna á að í þeim lögum sem kveða á um störf og starfsskyldur skattrannsóknarstjóra segir að skattrannsóknarstjóri geti hafið rannsókn á hverju því atriði er varðar skatta lagða á skv. þessum lögum og hann skal annast rannsóknir eftir kröfu skattstjóra og hann skal annast rannsóknir í málum sem til hans er vísað, sbr. 4. mgr. 96. gr. skattalaganna. Það er m.ö.o. svo að skattrannsóknarstjóri starfar mjög sjálfstætt og hann annast rannsóknir eftir kröfu ríkisskattstjóra. Það hefur ekki verið venja að fjmrh. gefi skattrannsóknarstjóra fyrirmæli um að hefjast handa um rannsókn á tilteknum einstaklingum eða tilteknum hópi einstaklinga. Ég hygg, án þess að ég hafi grafist fyrir um það hver rök eru fyrir þessari skipan, að þar liggi það til grundvallar að skattrannsóknarstjóri starfi sjálfstætt og þannig að sem minnst hætta sé á því að einstaklingum, skattgreiðendum, sé mismunað í þeim störfum sem framkvæmd eru á vegum embættis skattrannsóknarstjóra.

Ég tek hins vegar undir að það er fullkomin ástæða til þess að huga sem gleggst að öllum atriðum sem lúta að því að bæta innheimtu skatta þannig að tryggt sé að menn greiði skatta í réttu hlutfalli við sínar tekjur. Það er m.a. hlutverk skattrannsóknarstjóra að stuðla að því að svo megi verða. Ég hygg að það verði ekki borin fram gagnrýni á störf skattrannsóknarstjóra að þessu leyti. Ég tel að hann hafi í sínum störfum, bæði sá skattrannsóknarstjóri sem nú gegnir þessu embætti og eins þeir sem á undan honum hafa verið, innt það af hendi í fullu samræmi við ákvæði þessara laga.

Ég vil þá víkja lítillega að einu atriði, sem hv. 2. landsk. þm. minntist á í ræðu sinni, og það eru þær viðmiðunarreglur sem skattstjóri setur og ráða m.a. skattgreiðslum sjálfstæðra atvinnurekenda. Ég get tekið undir að þetta er eitt af þeim atriðum sem hljóta að koma til skoðunar þegar gengið er eftir því að sjálfstæðir atvinnurekendur greiði tekjuskatt til ríkisins í réttu hlutfalli við raunverulegar tekjur sínar. Undir það tek ég fullkomlega. En ég get ekki látið hjá líða að geta þess, vegna þess að hv. 2. landsk. þm. dró þetta hér inn í umræðurnar, að á liðnu sumri, þegar upplýst var hverjar tekjur ríkisins yrðu af tekjuskatti, kom fram að tekjuauki ríkissjóðs umfram það sem fjárlög höfðu áætlað stafaði m.a. af því að skattstjórar höfðu áætlað tekjur á þá sem ekki skiluðu skattframtölum langt umfram það sem gerst hefur áður og að skattstjóri hafði hækkað viðmiðunarreglur vegna sjálfstæðra atvinnurekenda umfram það sem almennar launabreytingar sögðu til um. Ég er ekki með tölur við hendina, en mig minnir að tekjuauki ríkissjóðs af þessum tveimur ástæðum hafi verið um 300 millj. kr. og tekjuauki ríkisins vegna þess að viðmiðunarreglurnar sem hér voru teknar til umræðu voru hækkaðar umfram breytingu á almennum launatekjum leiddu til þess að ríkissjóður fékk tæplega 100 millj. kr. meira í sinn hlut en áætlað hafði verið með fjárlögum. Ég hefði talið að þeir sem hafa áhuga á að bæta skattheimtu ríkisins að þessu leyti með því að tryggja það að sjálfstæðir atvinnurekendur skjóti ekki undan tekjum sínum hefðu fagnað þessari niðurstöðu. En það er öðru nær.

Þegar þessar upplýsingar lágu fyrir fékk ég skeyti frá þingflokki Alþfl., sem hv. 2. landsk. þm. á sæti í, þar sem þess var krafist að ríkissjóður endurgreiddi sjálfstæðum atvinnurekendum þessa upphæð. (JS: Ætlarðu að lesa skeytið?) Þess var krafist að allur tekjuauki ríkissjóðs umfram það sem fjárlög höfðu áætlað yrði endurgreiddur, þar á meðal sú aukning á tekjum sem varð vegna þess að skattstjóri hafði hækkað þessar viðmiðunarreglur og sú aukning sem varð vegna þess að skattstjórar gengu lengra fram í því að áætla á þá sem ekki höfðu skilað skattskýrslum. Það hefur verið áhyggjuefni hversu það hefur færst í vöxt að menn hafi ekki skilað skattskýrslum og það er einn þátturinn í því að reyna að spyrna við fótum í þessu efni og bæta og auka réttlæti í skattheimtunni að knýja á um það með þessum hætti.

Þingflokkur Alþfl. krafðist þess að þessar upphæðir yrðu endurgreiddar einnig. Ég hef nokkrum sinnum í umræðu hér á hinu háa Alþingi eftir þetta tekið það fram að það kunni að vera að Alþfl. hafi sent þetta skeyti áður en hann fékk upplýsingar um hvernig þessi tekjuauki skiptist niður og það kunni því að hafa verið af skorti á upplýsingum að skeyti þetta var sent, en það hefur margsinnis eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir, og þær hafa komið fram í blöðum og þær hafa komið fram í sölum Alþingis, komið fram af hálfu talsmanna Alþfl., einkanlega þó af hálfu formanns Alþfl., að eigi að síður stæði Alþfl. enn á því að það ætti að endurgreiða þessar auknu tekjur sem fengust af hækkun viðmiðunarreglunnar. Ég hef að vísu aldrei heyrt hv. 2. landsk. þm. mæla fyrir þessari endurgreiðslu eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir og ætla ekki að væna þm. um að hafa eina skoðun þegar um álagningu skatta er rætt en aðra þegar þessi mál eru til meðferðar, en það er óhjákvæmilegt að vekja athygli á þessu. Og ég vil spyrja hv. 2. landsk. þm. hvort hann sé tilbúinn til þess að afturkalla þá kröfu sem fram kemur í þessu skeyti að því er tekur til tekjuaukans sem kom vegna hækkunar á viðmiðunartekjum.