08.12.1986
Efri deild: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)
229. mál, frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Frú forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri, með síðari breytingum.
Á árinu 1984 voru samþykkt lög um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar manna í atvinnurekstri. Skv. lögunum eru framlög manna til atvinnurekstrar frádráttarbær frá skattskyldum tekjum innan ákveðinna marka og að uppfylltum vissum skilyrðum. Í lögunum er kveðið á um hámark frádráttar á ári hverju. Skv. 25. gr. laganna skulu fjárhæðir í 2. gr. breytast í samræmi við skattvísitölu eins og hún er á hverjum tíma, sbr. 121. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Þetta var gert í fjárlögum fyrir árið 1986 og umræddar fjárhæðir þannig hækkaðar um 36% á milli ára. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir því að skattvísitala verði ákveðin í fjárlögum fyrir árið 1987 og er því nauðsynlegt að breyta fjárhæðum 2. gr. laga nr. 9/1984 með sérstökum lögum.
Að mati Þjóðhagsstofnunar hefur verið gert ráð fyrir að laun hækki um 31% milli áranna 1985 og 1986 og er því í þessu frv. gerð sú tillaga að fjárhæðir 2. gr. laga nr. 9/1984 hækki um 31%. Er sú hækkun í samræmi við hækkun frádráttarliða frá tekjum sem gerð er tillaga um af sama tilefni í frv. til l. um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt sem nýlega hefur verið lagt fram á Alþingi og er nú til meðferðar hjá hv. fjh.- og viðskn. Nd.
Það er hins vegar rétt að taka fram að endurmat á launabreytingum milli áranna 1985/1986 fer nú fram þannig að ég vildi beina því til nefndarinnar sem fær frv. til meðferðar að svo kann að fara að gera verði breytingar á frv. í meðferð nefndarinnar þegar nýjar upplýsingar liggja fyrir um launabreytingar á milli áranna 1985 og 1986, en þess er að vænta að endurmat á þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið í því efni, liggi fyrir mjög skjótt.
Að öðru leyti er hér um að ræða eðlilega breytingu á þessum lögum sem ella hefði verið breytt með skattvísitölu. Ég sé því ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv., enda er það flutt í tengslum við breytingar á öðrum lögum sem til meðferðar eru og tengjast tekjuöflun ríkisins:
Það er mjög mikilvægt að þetta frv. fái skjóta meðferð þannig að það geti orðið að lögum fyrir jólaleyfi þm. eins og önnur frv. sem lúta að tekjuöflun ríkisins á næsta ári.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til, frú forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.