20.10.1986
Neðri deild: 4. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (125)

27. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég vil taka undir þakkir til þeirra þm. sem hér hafa talað. Mér finnst mjög ánægjulegt hvað hér hefur komið fram mikill áhugi þm. á þessu máli og það vekur vissulega vonir um að rækilega verði fjallað um það í nefnd sem við efuðumst reyndar aldrei um.

Það er einkum tvennt sem ég vildi koma inn á. Hv. 2. þm. Reykn. nefndi mál, sem reyndar hefur oft verið til umræðu og ekki síst úti í þjóðfélaginu, en það er sá munur sem er á skattlagningu tekna heimilisins eftir því hvort einn eða tveir vinna fyrir þeim tekjum og hefur verið nefnd sérsköttun eða samsköttun. Ég vil minna á það að Kvennalistinn styður sérsköttun og var andvígur því skrefi í átt til samsköttunar sem var stigið hér fyrir tveimur árum. Málið er ekki svo einfalt að það sé eingöngu hægt að líta á þá upphæð sem heimilin þurfa stundum að greiða hærra í sköttum ef einn vinnur fyrir tekjunum en ef það skiptist á tvo. Það má ekki gleyma því að það kemur fram mjög mikill sparnaður á heimilinu við það að annar aðilinn er eingöngu heima, og hinu má heldur ekki gleyma að það er töluverður kostnaður samfara því að vinna utan heimilis. Þannig að ég hygg að þetta muni vega hvað annað upp.

Hitt er varðandi titil frumvarpsins um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra. Mér kom nokkuð á óvart þessi viðkvæmni einkum hjá hv. síðasta ræðumanni varðandi þetta orð, húsmóðir. Ég sé ekki annað en að karlmenn séu fullsæmdir af því að vera kallaðir húsmaður. Það eru ýmis starfsheiti til sem fólk tekur sem starfsheiti en ekki kyngreind nafnorð. Ég minni á það að konur eru kallaðar herrar og hafa mátt sæta því. Þær hafa jafnvel verið kallaðar drengir, drengir góðir, og annað eftir því og ég bara minni á þetta hérna. Og ég minni einnig á að það stendur í greinargerðinni að vitaskuld eigi þetta heiti einnig við karla sem húsmóðurstörfum gegna. En það er ánægjulegt að hv. síðasti ræðumaður ber hag þeirra karla fyrir brjósti sem gegna störfum húsmæðra. Þeir munu nú kannske ekki vera mjög margir en engu að síður erum við Kvennalistakonur svo víðsýnar að við viljum að sjálfsögðu þeirra hag jafnmikinn og húsmæðra af kvenkyni.