08.12.1986
Neðri deild: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)

223. mál, lögreglumenn

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Afgreiðsla þessara þriggja mála, sem hér hafa verið á dagskrá, er með hreinustu endemum. Þær breytingar sem átt hafa sér stað á stöðu opinberra starfsmanna á síðustu árum hafa gert það að verkum að mál sem varða réttindi þeirra og skyldur eiga auðvitað ekkert erindi til hv. fjh.- og viðskn. Það er alveg hárrétt sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur bent á. Ég tel hins vegar fráleitt að þessi þrjú mál, sem eru hér á dagskrá, 3. mál, 4. mál og 5. mál, verði viðskila og úr því að búið er að vísa tveimur málunum til hv. fjh.- og viðskn. er fráleitt að senda það mál annað sem hér er nú verið að greiða atkvæði um. Ég segi já