09.12.1986
Sameinað þing: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)
Fjarvera ráðherra
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég tek undir með hv. 3. þm. Reykv. Hér eru mál öll með ólíkindum að því er þetta varðar. N.k. föstudag mun vera ákveðið að 2. umr. fjárlaga fari fram. Ég veit ekki til þess að umræða hafi orðið um það t.d. innan fjvn. að ríkið kaupi Borgarspítalann. Það hafa engin erindi borist slík, það er ég best veit, til fjvn. Ég tel að það sé um seinan n.k. þriðjudag að ræða þessi mál á Alþingi því að þá er einvörðungu eftir 3. umr. fjárlaga. Ef af þessu á að verða á slík umræða að fara fram strax á Alþingi. Þingið á ekki að verða afskipt. Það á að ræða slík mál. Hér er um 600-700 millj. bita að ræða. Einhvern tíma hefði mönnum þótt æðimikið að kyngja slíku. (Forseti: Þm. er beðinn að halda sér við umræður um þingsköp.) Ég held mig á sömu nótum og málshefjandi sem talaði áðan og taldi hann það vera um þingsköp.
Ég ítreka að umræða um þennan þátt mála verður að eiga sér stað á Alþingi fyrr en n.k. þriðjudag. Það er lágmarkskrafa hjá þinginu að það fái vitneskju um það sem hér er á ferðinni ef rætt er á annað borð í alvöru um að ríkið kaupi Borgarspítalann.