09.12.1986
Sameinað þing: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

Svör við skriflegum fyrirspurnum

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég sé mig tilknúinn til að vekja athygli hæstv. forseta á því að tveir mánuðir eru nú liðnir síðan lagðar voru fram hér í Sþ. þrjár fsp. til hæstv. menntmrh. varðandi tiltekin efni, um skólaakstur, gæslu í heimavistum og fjölda réttindalausra kennara við kennslustörf. Þessum þremur fsp. var útbýtt í Sþ. 14. okt. s.l. Síðasta mánuðinn hef ég margoft nefnt það við skrifstofu Alþingis að mig sé farið að lengja eftir svörum frá hæstv. ráðh. við þessum fsp.

Sumar þessara fsp. og viss atriði í þeim tengjast fjárlagagerð þar sem farið er fram á upplýsingar frá hæstv. ráðh. um hverjar séu hans tillögur varðandi niðurskurð til þessara þátta af hálfu ríkisins. Svo og er þarna innt eftir afstöðu ráðherra varðandi ásakanir sem hann hefur borið fram gagnvart starfsmönnum í skólakerfinu, fræðslufulltrúum o.fl. Mér finnst það vera óhæfa að hæstv. ráðh. skuli ekki hafa svarað þessum fsp. fyrir löngu. Hér er auðvitað komið fram yfir öll eðlileg mörk í þessum efnum og 2. umr. fjárlaga er að hefjast í þessari viku þannig að ég hlýt að finna að því hvernig hér er staðið að málum.

Nú er hæstv. ráðherra menntamála, Sverrir Hermannsson, vikinn af þingi í bráð og einhver í stjórnarráðinu gegnir þá væntanlega störfum fyrir hann. Ég hlýt að óska eftir því að hæstv. forseti sjái til þess að svar berist við umræddum fsp. næstu daga þannig að það geti legið fyrir við fjárlagaumræðu. Ég heyrði hér á hv. varaþm., sem er kominn til þings fyrir hæstv. menntmrh., að hann vilji hjálpa til að ýta á eftir svörum við þessum fsp. og þykir mér það út af fyrir sig góð liðveisla.

Ég nefni það einnig hér, þó að það sé ekki jafnt ástatt um það, að 30. okt. lagði ég fram fsp. til hæstv. iðnrh. um raforkuverð til álversins í Straumsvík og svar hefur enn ekki borist við þeirri fsp., en skrifstofa Alþingis hefur gefið mér vonir um að fari að styttast í það.

Þetta vildi ég nefna hér, herra forseti, vegna þess að ég veit að virðulegur forseti vill að það sé farið með skriflegar fsp. ekki ósvipað og með þær fsp. sem hér eru teknar á dagskrá og til umræðu og treysti því að hæstv. forseti veiti mér liðsinni í sambandi við þetta efni.