09.12.1986
Sameinað þing: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)
Svör við skriflegum fyrirspurnum
Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka forseta fyrir þær skýringar sem hann gaf fyrir hönd iðnrn. á vöntun á svari til hv. 5. þm. Austurl. Þannig stendur á að svarið er tilbúið fyrir nokkuð löngu, en mislagðist í ráðuneytinu. Ég bið innilega afsökunar á því. Það er tilbúið og eins og kom fram hjá hæstv. forseta geri ég ráð fyrir að það verði sent í dag ef það hefur þá ekki tafist vegna lokunar ráðuneytanna eftir hádegið. En það er sem sagt tilbúið fyrir þó nokkru.