09.12.1986
Sameinað þing: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)

Svör við skriflegum fyrirspurnum

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka forseta viðbrögð hans við ábendingum mínum og þau svör sem hann kom með og ábendingar sem hann reiddi fram varðandi þingsköp um þetta efni. Ég hygg að varðandi þær fyrirspurnir sem ég var að inna eftir svörum við gildi það ekki að þær séu á neinn hátt þannig fram settar eða flóknar að ekki ætti með tiltölulega skjótum hætti að vera unnt að reiða fram svör við þeim. Það varðar að vísu tölulegar upplýsingar sumpart, en þar á meðal tillögur sem hæstv. ráðh. hlýtur að hafa lagt fram varðandi viðkomandi mál við undirbúning fjárlaga. Nú er hins vegar að draga að afgreiðslu fjárlaga á Alþingi og það er alveg sérstaklega með tilliti til þess að ég tel mjög illt við það að búa að svör fáist ekki fyrir 2. umr. fjárlaga. En samkvæmt því sem fram kom hjá hæstv. forseta er engin vissa fyrir því að svör við 33. máli og 34. máli berist fyrir jól þó að vonir séu gefnar um að það geti gerst í næstu viku.

Ég held í sambandi við skriflegar fsp. og það hversu algengt er að óeðlilegur dráttur verði á svörum við beiðnum um skrifleg svör við fsp. að skynsamlegt væri að það fylgdi dagskrá þingsins í fyrirspurnatíma Sþ. yfirlit yfir þær skriflegu fsp. sem óskað hefur verið eftir svörum við. Ég held að það mundi tryggja að þær fengju hliðstæða meðferð og fsp. þar sem óskað er eftir munnlegum svörum frá ráðherrum, mundi minna viðkomandi hæstv. ráðh. á fyrirspurnirnar því að vissulega getur verið um að ræða að þær falli í gleymsku, séu í vinnslu hjá embættismönnum í viðkomandi ráðuneyti og það sé tæpast við viðkomandi ráðherra að sakast þó að það dragist um einhverjar vikur að svara.

Þetta er vinsamleg ábending frá minni hálfu jafnhliða því sem ég ítreka beiðni mína um að ýtt verði á eftir svörum við nefndum fyrirspurnum frá menntmrn. Einhver í Stjórnarráði Íslands hlýtur að gegna starfi menntmrh. í fjarveru hæstv. ráðh. Sverris Hermannssonar.